Fararstjóri

Margrét Árnadóttir

Margrét Árnadóttir

Margréti Árnadóttur þarf vart að kynna fyrir gönguáhugafólki en hún hefur verið vinsæll og eftirsóttur fararstjóri í skipulögðum gönguferðum erlendis síðan um 1990.
Hún hefur gengið mjög víða og fór síðast með gönguhóp til Tenerife í mars 2010. Margrét hefur gengið víða um lönd og má þar nefna, Ítalíu, Króatíu og ýmsa staði á Spáni.
Hún er þekkt fyrir fagmennsku í öllu tengdu gönguferðum og hugsar mjög vel um farþega sína. Svo er hún einstaklega þjónustulunduð og skemmtileg!
Margrét kemur til með að halda undirbúningsfund áður en ferð er farin.