Gönguferðir um Oberstdorf í þýsku Ölpunum

Oberstdorf svæðið í þýsku ölpunum er rómað fyrir náttúrufegurð og er gríðalega vinsælt útivistarsvæði. Báðar okkar gönguferðir, sem við buðum upp á í fyrra, seldust fljótt upp og bjóðum því nú upp á 3 nýjar ferðir. Ein þeirra er þegar uppseld en hinar tvær eru bókanlegar hér á síðunni. Báðar tvær ævintýralegar ferðir þar sem er gengið, ferðast með kláfum, ýmsum farartækjum öðrum í ævintýralegu umhverfi og góðum félagsskap. Frábær upplifun.

Önnur þeirra; GÖNGU- OG DEKURFERÐ, í þýsku Ölpunum er hefðbundin, og gist á sama staðnum ; Hótel Oberstdorf allan tímann. Að okkar mati fallegt hótel í glæsilegu umhverfi sem hentar þessum gönguferðum alveg fullkomlega. Á hótelinu er upphituð sundlaug, spa, lítil líkamsræktarstöð,gufubað, slökunarherbergi og annað í þeim dúr. Glæsilegt hlaðborð allan tímann. Drykkir eru ekki innifaldir.

Hin ferðin ; OBERSTDORF- MERAN 2011 hefst í Oberstdorf í Þýskalandi, þar sem dvalið er í 2 nætur en síðan er gengið yfir til Austurríkis og Ítalíu. Gist er á mismunandi stöðum og farangurinn er fluttur á milli staða. Mjög spennandi ferð þar sem gist er í fjallaskálum, gistihúsum og hótel Oberstdorf.

Fullt fæði er innifalið í ferðinni.

Gönguferðirnar miðast við 5-6 tíma á hverjum degi í 5 daga og er lagt af stað í þær eftir morgunverð. Síðan er stoppað á athyglisverðum stöðum og hvíldartími tekinn eins og þarf.

Þetta eru gönguferðir sem henta öllum sem eitthvað geta hreyft sig og eru líkamlega heilbrigðir.

 

 

Göngu- og dekurferð um Oberstdorf 11.-18.ágúst 2011.

Ferðatilhögun

Verð á mann í tvíbýli: kr. 194.500,-
Innifalið ; Flug, flugvallarskattar, flugvallarakstur erlendis, gisting í 7 nætur, fullt fæði, allar göngu,kláfar, aðgangur að skíðastökkspalli, akstur erlendis, aðgangur að sundlaug, líkamsrækt og spa á gististað og íslensk fararstjórn
Viðbót fyrir einbýli er kr. 25.000,-



Göngu- og dekurferð um Oberstdorf 18.-25.ágúst 2011 - UPPSELT!

Ferðatilhögun

Verð á mann í tvíbýli: kr. 194.500,-
Innifalið ; Flug, flugvallarskattar, flugvallarakstur erlendis, gisting í 7 nætur, fullt fæði, allar göngu,kláfar, aðgangur að skíðastökkspalli, akstur erlendis, aðgangur að sundlaug, líkamsrækt og spa á gististað og íslensk fararstjórn
Viðbót fyrir einbýli er kr. 25.000,-


OBERSTDORF-MERAN 2.-11.ágúst 2011: Gengið frá Þýskalandi yfir Austuríki til Ítalíu

Ferðatilhögun

Verð á mann í tvíbýli: kr. 229.500,-
Innifalið ; Flug, flugvallarskattar, flugvallarakstur erlendis, gisting í 7 nætur, fullt fæði, allar göngu,kláfar, aðgangur að skíðastökkspalli, akstur erlendis, aðgangur að sundlaug, líkamsrækt og spa á gististað og íslensk fararstjórn
Viðbót fyrir einbýli er kr. 25.000,-


Umsagnir frá viðskiptavinum

 

Þökkum fyrir frábæra ferð til Oberstdorf. Þessi ferð stóðst allar okkar væntingar og rúmlega það. Hótelið var meiriháttar, umhverfið yndislegt og fararstjórnin framúrskarandi. Það var gott að finna hversu mikið Margrét fararstjóri vissi um svæðið og hún fór með okkur á mjög spennandi og fallega staði. Frábær ferð sem við gleymum seint.

Þorbjörg og Þráinn

 

Síðastliðið sumar fórum við hjónin í ferð til Oberstdorf í þýsku ölpunum þar sem við dvöldumst í eina viku á sama hótelinu og gengum um fjöllin í nágrenni þess. Ferðin var í alla staði frábær, fyrst og fremst vegna þess hve landslagið er stórbrotið og fallegt og gönguleiðirnar skemmtilegar og fjölbreytilegar. Einnig var hótelið og öll aðstaðan þar fyrsta flokks. Fararstjórnin var í alla staði til fyrirmyndar og ferðafélagarnir sem voru á ýmsum aldri náðu mjög vel saman.

Sigrún Andrésdóttir og Sigurður Þórðarson

 


Bókanir og nánari upplýsingar

Athugið - allar gönguferðirnar eru háðar því að lágmarksþátttaka (12 manns) náist en hámarskfjöldi í hverja ferð er um 20.

Bókanir og nánari upplýsingar og hjá Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4000.