Ferðatilhögun: Göngu og dekurferð í Ölpunum
Oberstdorf 18.-25. ágúst 2011
Dagur 1:
Flogið er til Friedrichafen. Þar biður okkar áætlunarbíll og ekur okkur til Oberstdorf á Hótel OBERSTDORF og þar bíður okkar veglegt kvöldsnakk . V ið munum gista í 7 nætur og þar munum við njóta ríkulegs morgunverðar og margréttaðar kvöldmáltíðir. Á hótelinu er 700 fm FITNESS/WELLNWSS svæði auk þess er þar þessi fína úti sundlaug. Þegar við komum úr göngum bíður allt þetta eftir okkur t.d hvítir sloppar inniskór og handklæði.
Dagur 2: Breitaklamm (alveg einstakt náttúrulegt gil)
Við göngum frá hótelinu okkar (884m) í ca 1 klst. Eftir mjög fallegum skógarstíg meðfram ánni sem þar rennur. Þar hefst ganga okkar inn í þetta stórkostlega gil og það sem fyrir augu okkar ber er alveg ógleymanlegt. Við göngum yfir til Austurríkis til Riezlam (1086m) og töku strætó heim gangan tekur ca 4-5 klst.
Dagur 3: Freiberdsee vatn og nágrenni.
Þetta vatn er sérstakt að því leiti að það hvorki rennur í það né úr því og er frekar heitt og vinsælt að baða sig í því. Síðan förum við að skoða skíðastökkpall(skiflug-Scanze)(kostar 3,80E) Þessi ganga tekur ca 4-5 klst og er endað á skoðunarferð í Oberstdorf síðan er frjáls tími.
Dagur4: Gengið í kringum Widderstein 2,236m
Við förum í strætó til BAAD í 1244m hæð og erum við þá komin í Austurríki þar hefjum við göngu okkar í kringum fjallið Widderstein við göngum eftir rómatískum dal sem heitir Bjarnardalur og er hæsti toppur dagsins 2015m sen er Widderstein-Hutte. Það er góður göngustígar á þessari leið og er hækkun dagsins ca 800m og tekur þessi ganga ca 6-7 klst. Góðir veitingastaðir eru á leiðinni og frábært ýtsýni er til allra átta Síðan er tekið strætó til baka á hólel.
Dagur 5; Frídagur.
Allt mögulegt í boði á hótelinu og svo er stutt í Oberstdorf bæinn.
Dagur 6: Fellorn 2,039m
Í dag tökum við 3 kláfa til þess að gera þessa ferð skemmtilegri og til þess að njóta okkar berur og útsýnisin Við byrjum á því að ganga ca 15 mín frá hóteli í fyrsta kláf Söllereckbahn og byrjum þar að ganga í 1,350m og er gengið upp á Fellhorn ca 700 m. Hluti af göngunni göngum við á fjallsbrúnum og sjáum til beggja handa annar fóturinn er í Þýskalandi og hinn í Austurríki. Góðir göngustígar og er fjallið grænt og fallegt. Gott veitingahús er á toppnum. Síðan er kláfur tekin í tveim áföngum niður og gengið í ca 1 ½ heim á hótel eða tekið strætó Ca 7 tíma ferð.
Dagur 7: Rubihorn 1,957m
Við göngum frá hótelinu og gegnum Oberstdorf og inná göngustíg sem minnir mig mikið á byrjunina á göngu á Fimmvörðuháls. Við göngum meðfram á með mörgum fallegum fossum og göngum upp úr skóginum og þá blasir við frábært útsýni og er það óborganlegt á toppi Rubihorn 1,957m. Þetta er mest krefjandi ganga ferðarinnar en göngustígar eru vel lagðir en smá klaungur þegar nálgast toppurinn . Niðurferðin er önnur en uppferðin og komum við niður að vatni sem heitir Gaisalpsee 1,590m þar er gott að fara í fótabað fyrir restina af ferðinni niður. Það er góður veitingastaður á leiðinni niður en síðan er gengið ca 30 mín í strætó. Ferðin tekur ca 8 klst.
Dagur 8:
Rúta kemur að sækja okkur á hótelið og ekur okkur á flugvöll í Friedrichshafen þaðan sem er flogið heim. Ef flugið er seint þá er gott að nota aðstöðuna á hótelinu yfir daginn og fara úthvíldur í flug. Svo er líka hægt að skoða búðir í Oberstdorf. En athugið að fæðið sem er innifalið í verði ferðarinnar endar á hádegismat brottfarardag.
Góða ferð.