Ferðatilhögun

Beint flug til Tenerife og síðan er ekið frá flugvelli til hins fallega bæjar Puerto de la Cruz á norðuhluta eyjarinnar. Þar verður dvalið fyrstu 4 dagana. Á þeim tíma verða farnar fjórar spennandi gönguleiðir um króka og kima Tenerife í stórbrotnu landslagi þar sem andstæðunum ægir saman. Framandi og spennandi göngur á þröngum stígum í Anagafjallgarðinum og Mercedes fjöllunum. Síðan tekur hvað við af öðru ; Teide þjóðgarðurinn (Parque Nacional de las Cañadas del Teide), Tenoskaginn, Organos Trail leiðin og ganga í þjóðgarðinum þar sem gengið er að Las Fortalezas klettunum. Þegar á suðuhlutann er komið er gengið að hinu stórfenglega Masca gili sem er umlukið 600 metra háum klettaveggjum. Að lokum er gengið að Roque del Conde sem eitt af landfræðilegum einkennismerkjum suðurhluta eyjarinnar. Um 1000 metra hár tignarlegur klettur sem rís yfir Los Cristianos og Los Americas. Tiltölulega auðveld ganga og mikið útsýni.

GÖNGLEIÐIR : NORÐUR TENERFE

Miðvikudagur 23. mars : Anaga fjallgarðurinn og Mercedes.

Byrjar ca. 920 m. Með lítilli hækkun og lækkun. Göngutími 4-5 klst.
Fjölbreytt ganga á góðum stígum. Við förum í gegn um fagran skóg , á leið okkar munum við sjá hversu fjölbreyttur gróðurinn er á eyjunni.

Fimmtudagur 24. mars : Teno fjallgarðurinn Teno Alto – Teno Bajo.

600 m hækkun og lækkun 600 m. Göngutími 5-6 klst.
Við göngum í gegn um mikil og djúp gil og njótum stórkostlegs útsýnis. Þegar komið er í um 1000 m getur verið vindasamt og skýjað á toppi fjallsins.

Föstudagur 25. mars : Los Organos - Organos Trail.

Byrjar í 1100 m hæð. Hækkun 500 metrar, lækkun 500 metrar. Göngutími 5 klst.
Gangan byrjar á bröttum stíg, þegar að klettaveggnum er komið taka við hlykkjóttir bogadregnir stígar sem liggja utan í fjallshlíðinni.

Laugardagur 26. mars : Teide National Park.

Byrjar í 2200 m. Hækkun um 400 m, lækkun 500 m. Göngutími 5-6 klst.
Við byrjum daginn á að skrá okkur út af hótelinu og tökum allan farangur með i rútuna. Mikilvægt að hafa hlýjan fatnað með sér og getur verið vindasamt á toppi fjallsins. Eftir gönguna á hæsta fjalli Tenerife keyrum við á suðurströnd eyjarinnar og tekur um 1,5 tíma.


GÖNGLEIÐIR : SUÐUR TENERFE

Sunnudagur 27. mars : Masca - Barranco de Masca.

Byrjar í 650 m. Lækkun 650 metrar. Göngutími 4-5 klst.
Í lok göngunnar verður farið í bát og siglt til baka í 30 mínútur. Hægt er að stinga sér til sunds í sjónum og upplagt að vera í sundfötum undir klæðum.

Mánudagur 28.mars : Roque Del Conde.

Byrjar í 600 m. Hækkun og lækkun 400 m. Göngutími 4-5 klst.
Gengið er upp að Camino del Vento og yfir Las Cascas gilið um einstakan gróður, áfram höldum við upp á flatt fjallið, þar sem útsýnið og sérstæð blómaflóra tekur við, ásamt frábæru útsýni yfir Granadilla.