Áður en farið er í hjólaferð

Vinsamlegast kynnið ykkur eftirfarandi áður en hjólaferð er bókuð

Hér á eftir eru ábendingar og ráð sem við skorum á alla sem hyggja á hjólaferð að kynna sér þetta vel. Þetta er ekki tæmandi listi yfir allt sem menn verða að muna en svona það helsta.

Ef einhverjar spurningar vakna geta menn snúið sér til Íþróttadeildar Úrvals-Útsýnar með erindi sín og þar verður þeim erindum svarað og leiðbeint.

Þjónusta

Við leggjum áherslu að bjóða það sem við teljum það besta í svona ferðum. Reyndir íslenskir fararstjórar eru með í öllum ferðum.

Þjónusta erlendra samstarfsaðila allan sólahringinn, hjól og annar útbúnaður eins og hann gerist bestur og farangur fluttur á milli staða í þeim ferðum sem það á við.

Gisting

Gist verður á 3ja til 4 stjörnu hótelum og er morgunverðahlaðborð innifalið.

Leitast er við að finna hótel sem auðvelt er að komast að á hjólum en eru þó miðsvæðis. Alltaf er séð fyrir fyrir öruggri geymslu hjólanna meðan gist er.

Hjól og útbúnaður

Hjólin eru létt, svokölluð borgarhjól, sem eru þannig að hjólreiðamaðurinn situr uppréttur sem til dæmis auðveldar fólki að njóta útsýnisins.

Töskur eru framan og aftan á hjólunum. Í stýristöskunni, sem auðvelt er að taka af og festa á stýrið, er upplagt að geyma verðmæti en í hliðartöskunni eru geymd til dæmis aukaföt og þess háttar.

Tekið skal fram að hjólin eru eingöngu búin handbremsum.

Dagleiðir

Dagleiðir sem hjólaðar eru, eru misjafnlega langar og erfiðar. Það er alltaf stoppað með hæfilegu millibili á fallegum stöðum en annars vísum við í leiðalýsingu hverrar ferðar fyrir sig.

Hvaða ferð hentar þér?

Erfiðleikastig

Við skiptum ferðum okkar í fjögur erfiðleikastig - en bent er á að slíkt mat er alltaf einstaklingsbundið. Síðan má sjá stuðul og nánari lýsingu inni í leiðarlýsingu hverrar ferðar.

Eitt hjól

Hjólað mest á flatlendi. Mælt með fyrir byrjendur og börn.

Tvö hjól

Hjólað mest á flatlendi en eitthvað í brekkum.

Þrjú hjól

Hjólað í hæðóttu landslagi og fremur langar dagleiðir.

Fjögur hjól

Hjólað í allskonar landslagi; Brekkur, átök og langar dagleiðir. Fyrir mjög vant hjólafólk.

* Blandaðir flokkar : Dæmi : Meðal Létt ferð ; blanda af flokki eitt og tvö.

Undirbúningsfundir

Fyrir hverja ferð er haldinn undirbúningsfundur þar sem farið er yfir nauðsynlega hluti.

Útbúnaðarlisti

Hér á eftir eru ábendingar og ráð sem ágætt er að lesa. Þetta er ekki tæmandi listi yfir allt sem menn vera að muna en svona það helsta. Ef einhverjar spurningar vakna geta menn snúið sér til Úrvals-Útsýnar með erindi sín og þar verðum þeim erindum svarað og leiðbeint. Einnig er minnt á að farið er yfir nauðsynlega hluti á undirbúningsfundum sem haldnir verða fyrir hverja fer sem farin er.

  • Hjólahjálmur
  • Drykkjarbrúsi
  • Hjólabuxur með púða
  • Stuttbuxur
  • Stuttermabolur úr gerviefni
  • Langermabolur eða jakki
  • Þunnur regnfatnaður
  • Þægilegur lítill bakpoki fyrir nesti og auka fatnað
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn
  • Sælgæti eða þurrkaðir ávextir
  • Áhersla er lögð á að vera ekki í bómullarfötum næst sér.
  • Grifflur
  • Baðföt
  • Lítið handklæði í hjólatösku.
  • Plastpoka ; t.d. til að pakka blautum fötum.
  • Myndavél ; Nægjanlegar filmur eða minniskort.
  • Skófatnaður : Hjólaskór eða fimleika-frjásíþróttaskór með frekar stífum sóla með góðu gripi.
  • Persónuskilríki.
  • Nauðsynlegar tryggingar.
  • Greiðslumiðlar. Kort eða reiðufé.
  • Meðöl og lyf. Ef viðkomandi tekur e-r lyf að staðaldri verða menn að muna eftir því.
  • Ferðaapótek.

Bókanir og nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og bókanir hjá Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4000.