Hið fullkomna frí fyrir unga knattspyrnuiðkendur!
Það virðist kannski afstætt að hugsa um orðið frí þegar skóli er annars vegar, en fyrir unga knattspyrnuiðkendur er þetta fullkomið tækifæri til að finna smjörþefinn af því hvernig það er að æfa eins og atvinnumaður þar sem aðstaða, þjálfun og aðbúnaður er fyrsta flokks. Auk þess að spila fótbolta með krökkum allstaðar að í heiminum eru skipulagðar skemmtilegar samverustundir og farið í ýmsar spennandi skoðunarferðir.
Úrval Útsýn skipuleggur ferð í Knattspyrnuskóla IFDA (The International Football Development Academy) fyrir stráka og stelpur á aldrinum 12-17 ára. Skólinn útvegar ekki einungis tækifæri á að vera uppgötvaður af fagmönnum frá heimsklassa fótboltaliðum heldur leggur hann einnig mikla áherslu á tækni, leikfræði, líkamlegt ástand, sálfræði og félagslegan þátt. Markmið “IFDA” er að hjálpa ungum knattspyrnuiðkendum að ýta undir ástríðu þeirra á leiknum, með því að veita ráðleggingar, vísbendingar og frábæra kennslu á æfingum. Það mun hvetja þá til þess að komast inn í leikinn, eins mikið og mögulegt er til að geta notið leiksins af ástríðu og lært í leiðinni hvernig gott líferni og umhugsun góðrar heilsu styður þá lífssýn.