Partille Cup
Eins og síðastliðin 12 ár þá er Úrval Útsýn er með ferð á Partille Cup og skipulagningin í höndum Sigurðar Gunnarssonar eins og áður. Fyrir nokkrum árum var Magnus Wislander með íslenska hónum en í ár verður það Sigfús Sigurðsson, sá kunni íslenski landsliðsmaður í handbolta. Hann verður einn fararstjóra Úrvals Útsýnar og verður mjög sýnilegur á svæðinu.
Aðalfararstjóri okkar er Sverrir Reynisson, maður með mikla reynslu af fararstjórn og liðsstjórn liða á Partille Cup, fyrir utan að hafa búið í Svíþjóð í 8 ár. Saman verða þeir félagar með fyrirfram auglýsta viðtalstíma á hverjum degi - fyrir að vera ávallt til taks.
Mótið fer fram á Heden svæðinu í miðborg Gautaborgar, stutt alla velli, gistingu og afþreyingu.
Flugið
Beint flug til Gautaborgar 4. og 5.júlí og heim 11. og 12. júlí.
Gisting
Farþegar Úrvals-Útsýnar gista í Samskolen sem er í 5 mín fjarlægð frá mótssvæði, með mötuneytið og sturtuaðstöðu á staðnum.
Örstutt í afþreyingu eins og Liseberg tívóli garðinn. Frábærar samgöngur til/frá skóla.
Frítt í samgöngutæki á meðan á mótinu stendur.
Leikjafyrirkomulag : Minnst 6 leikir á lið
Leiktími er 2x15 mín. fjögur til fimm lið í riðli. Tvö efstu lið í hverjum riðli fara áfram í A-úrslitariðil, önnur lið í B-úrslitariðil. Sigurvegarar í þessum riðlum fara í A og B úrslit. Hvert lið leikur lágmark 6-7 leiki.
Afþreying
Frír aðgangur í Liseberg – Tívolí garðinn..
Innifalin dagsferð í Skara Sommarland garðinn.
Farastjórn
Sigfús Sigurðsson og Sverrir Reynisson. Sverrir þekkir Partille betur en flestir, ekki síst mótið sjáft enda verið oft á Partille Cup sem liðstjóri og fararstjóri liða.