Skólaheimsóknir

Náms- og kynningaferðir

Úrval Útsýn hefur um árabil verið leiðandi í ferðum fyrir kennara á erlendar sýningar kennsluefnis og tæknibúnaðar, sem hugsaður er fyrir skóla. Í tengslum við slíkar ferðir hefur ferðaskrifstofan einnig boðið kennurum að komast í heimsóknir í skóla, þar sem sum þessara tækja eru í notkun.

Því er spurt. Er áhugi hjá kennurum í skólanum ykkar á heimsókn í erlenda skóla? Hafið þið rætt ferð til að kynnast vinnubrögðum og viðhorfum gagnvart kennslu og kennsluaðferðum í ýmsum löndum.

Starfsmenn Úrvals – Útsýnar eru með víðtæk, örugg og bein tengsl í skólum um allan heim, á öllum skólastigum og taka á móti öllum fyrirspurnum, er lúta að slíkum heimsóknum.

Við vinnum hratt og vel með ykkur að hverskonar dagskrá sem er, í hvaða landi sem er, sé áhugi á slíku. Svona heimsóknir leiða oft af sér dýrmæt samskipti og hugmyndaauðgi sem víkka sjóndeildahringinn.

Sendu okkur fyrirspurn á sport@uu.is eða hringdu í okkur í síma 585-4000