Davos
Úrval – Útsýn kynnir nýjan skíðaáfangastað, Davos í Sviss
Í Davos er stærsta og þekktasta skíðasvæði Sviss. Bærinn er einnig
vel þekktur sem alþjóðlegur ráðstefnubær en þar eru árlega haldir
margir alþjóðlegir fundir og ráðstefnur.
Davos er ein af hæstu borgum Evrópu og er skíðasvæðið talið eitt af
því snjóöruggasta í Ölpunum. Þar er að finna eitt besta skíðasvæði
Alpanna sem nær yfir 300 km2 svæði. Það samanstendur af fimm skíðasvæðum og hægt er skíða á milli Davos og hins fræga skíðabæjar Klosters.
Eitthvað fyrir alla
Í Davos er skíðasvæði fyrir alla, byrjendur og þá sem eru lengra
komnir. Svæðin í Jakobshorn og Parsenn eru fyrir kröfuharða skíðamenn.
Pischa, Madrisa og Rinerhorn svæðin eru mjög fjölbreytt og henta
flestum vel. Alls eru 3 svæði fyrir snjóbretti við Jakobshorn. Alls eru
85 lyftur á svæðinu og brekkur við allra hæfi. Bærinn sjálfur liggur í
1.500 m hæð yfir sjávarmáli. Hægt er að skíða upp í tæplega 3.000 m
hæð. Einnig eru mjög fjölbreyttar skíðagöngubrautir í Davos.
Skíðaferðir hófust til Davos í lok 18 aldar og því er óhætt að segja
að Davos sé gamalgróinn skíðabær. Íbúar bæjarins eru 13.000 og þar eru
fjölmörg veitingahús, mikið af fínum verslunum, píanóbarir með lifandi
tónlist og diskótek.
Flogið er til Friedrichshafen og ekið til Davos. Aksturinn tekur um 2,5 klst.
Dagsetningar í vetur
30. janúar
6. febrúar
13. febrúar
20. febrúar