Hotel National Davos
UPPLIFUN
Hotel National er gott fjögurra stjörnu hótel hlýlega innréttað í svissneskum stíl og einstaklega notalegt. Alls eru 65 herbergi á hótelinu. Gestum er boðið upp á drykk við komu á hótel. Alla vikuna er boðið upp á mismunandi yfirskrift kvöldverðar þar má nefna svissneskt, franskt og ítalskt kvöld sem og einstaka sælkerakvöldverði frá ýmsum landshlutum, rómantískan kvöldverð sem og einn "gala" kvöldverð. Skíðarútan stoppar skammt frá hótelinu en það tekur um 10 mínútur að ganga að lyftunni. Þráðlaust internet er á hótelinu. Lítið líkamsræktarherbergi og leikherbergi fyrir börn. Á barnum er lifandi tónlist öll kvöld. Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi en stutt er að ganga í miðbæinn.
VISTAVERUR
Herbergin eru útbúin með öllum bestu þægindum, síma, sjónvarpi, minibar og öryggishólfi. Herbergin taka hámark 2 fullorðna og 1 barn. Hægt er að panta samliggjandi herbergi.
Ath. Ekki er boðið uppá íslenska fararstjórn í Davos.