Club Hotel Davos
UPPLIFUN
Club Hotel Davos er gott 3 stjörnu hótel staðsett í u.þ.b. 5 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum. Á hótelinu er gufubað og stór sundlaug. Gestir fá handklæði við sundlaugina sem opin er frá kl 7 til 19. Aðgangur að gufu gegn gjaldi. Skíðarútan stoppað við hótelið og ekur farþegum á öll skíðasvæði bæjarins. Innifalið er 1/2 fæði, morgunverðarhlaðborð og 4 rétta kvöldverður. Á hótelinu eru 145 herbergi. Gestir hafa aðgang að nettengdri tölvu í gestamóttöku. Einnig er hægt að kaupa aðgang að þráðlausri nettengingu.
VISTAVERUR
Herbergin eru innréttuð í einföldum stíl en eru annars útbúin öllum helstu þægindum. Lítill ísskápur er á hverju herbergi svo og öryggishólf, sjónvarp, sími og hárþurrka. Hægt er að velja um tvennskonar herbergi. Herbergi sem heita "´Suður" eru flest nýuppgerð og áætlega rúmgóð. Norður herbergin eru með rúmum sem dregin eru út þannig að þegar þau eru ekki í notkun er gott rými í herberginu.
Ath. Ekki er boðið uppá íslenska fararstjórn í Davos.