Central Sporthotel Davos
UPPLIFUN
Central Sporthotel er 4 stjörnu hótel á besta stað í Davos. Örstutt í lyftur og hótelið er staðsett alveg í miðbænum, stutt frá verslunum, veitingahúsum og börum. Hótelið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í 5 kynslóðir og er það hlýlegt og notanlegt. Á hótelinu er heilsurækt með sundlaug, nuddpotti og gufubaði. Boðið er uppá morgunverðarhlaðborð og fyrir þá sem vilja er boðið uppá 1/2 fæði og er þá kvöldverður innifalinn. Kvöldverðurinn er valinn af matseðli og er þá yfirleitt um val milli tveggja til þriggja rétta, ásamt eftirréttum. Á hótelinu er einnig rekinn a la carte veitingastaðurinn " Restaurant Bundnerstubli", sem er vel þekktur í bænum. Þar er einnig notalegur píanóbar með lifandi tónlist.
Ath. Ekki er boðið uppá íslenska fararstjórn í Davos.
VISTAVERUR
Á hótelinu eru 95 herbergi. Þau snúa ýmist í suðvestur með útsýni yfir bæinn og einstaka herbergi snýr að Jakobshorn eða Brambuel með glæsilegu útsýni yfir fjöllin. Herbergin eru vel búin helstu þægindum og öll með svölum.