Madonna di Campiglio
Einstakt skíðasvæði
Madonna di Campiglio
er einn þekktasti skíðabær Ítalíu. Úr miðbænum er stutt í lyftur og
kláfa og tekur skamman tíma að komast upp í skíðalöndin ofan við bæinn.
Allir geta fundið brekkur við sitt hæfi í bænum og kosturinn að það er
aldrei langt að fara, hvort sem brekkurnar eru rauðar, bláar eða
svartar.
Madonna er fallegt fjallaþorp í faðmi hinna tignarlegu Dólómítafjalla, en tindarnir eru afar sérstakir.
Líflegur bær
Bærinn er líflegur og bíða heimamenn eftir gestum með heita
skíðadrykki og dynjandi tónlist á hinum fjölmörgu krám bæjarins.
Vinsælir "après-ski" staðir eru t.d. La Stube di Frank Josef og Café
Suisse.
Á veitingastöðum og pizzerium ilmar allt af ítölsku kryddi og á
kaffihúsunum fæst heimsins besta kaffi ásamt girnilegu meðlæti.
Tískuverslanir eru með nýjasta nýtt frá Milano, vöruúrval er í
íþóttaverslunum og einnig eru verslanir með minjagripi og skart.
Lyftur og kláfar í göngufæri
Kláfarnir þrír, Pradalago, 5 laghi og Spinale flytja skíðamenn hratt
og örugglega upp í brekkurnar, og öll hótel Úrvals Útsýnar eru í
göngufæri við kláfana. Lyftukostur er fyrsta flokks og heimamenn hugsa
einstaklega vel um brekkurnar, sem eru sólríkar og við allra hæfi.
Á hverjum degi getur þú valið gott skíðasvæði með breiðum brautum og brekkum, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn.
Góð aðstaða fyrir snjóbrettafólk
Aðstaða er góð fyrir snjóbrettafólk og má þar sjá leikna brettamenn
takast á loft frá stökkpöllum, sem búnir hafa verið til úr snjónum,
enda nóg af snjó í Madonna.
Þér líður ótrúlega vel í Madonna.
Dagsetningar í vetur
30. janúar
6. febrúar
13. febrúar
20. febrúar
27. febrúar
Sjá einnig
Skíðafæri og veður í Madonna di Campiglio
Vefmyndavél á torgi Madonna di Campiglio