Fararstjóri:
Birna Haraldsdóttir
Birna Haraldsdóttir hefur stundað skíðin frá blautu barnsbeini. Hún æfði skíði með Skíðadeild Ármanns frá því hún var 6 ára gömul og keppti reglulega þar til hún lagði keppnisskíðin á hilluna um 18 ára aldur. Birna hefur þjálfað yngri flokka hjá skíðadeild Ármanns og stundar í dag skíðamennsku af miklum áhuga meðfram starfi sínu sem leikskólakennari ásamt því að starfa í björgunarsveit.