Hotel Campiglio Bellavista

UPPLIFUN
Hotel Campiglio Bellavista er glæsilegt 4 stjörnu hótel á besta stað í Madonna. Hótelið var opnað í desember 2008 eftir algjörar endurbætur frá því í apríl 2008 þar sem hótelið var endurbyggt frá grunni. Hótelið er staðsett alveg við Pradalago kláfinn. Það er smekklega innréttað og einstaklega hlýlegt í alla staði. Í anddyrinu er fallegur bar, setustofa og arinn.

 


 

Rekstraraðili hótelsins, Artini fjölskyldan, er vel þekkt í Madonna fyrir rekstur á veitingastaðnum Ristorante Artini sem einnig er staðsettur er á hótelinu. Óhætt er því að mæla með matnum sem hótelið hefur uppá að bjóða. Morgunverðarhlaðborð með öllu tilheyrandi, nýbakað brauð, mjólkurvörur álegg og ostar. Kvöldverðurinn er ljúffengur og ávallt er boðið uppá heimatilbúið pasta, fisk, kjöt ásamt tilheyrandi meðlæti og ljúffenga eftirrétti.

 

 


Heilsuræktin er opin frá kl. 10 til 19:30 (lokað á sunnudögum). Frítt fyrir gesti hótelsins. Þar er í boði aðgangur að glæsilegri sundlaug, nuddpotti, Tyrkneskt bað, gufubað og íshellir. Hægt er að kaupa tíma í nuddi eða snyrtingu. Börn fá aðganga að sundlaug í fylgd með fullorðnum.

VISTAVERUR

 

Herbergin eru fallega innréttuð og rúmgóð. Öll með sjónvarpi, síma, internet tengingu, hárþurrku og minibar. Hægt að velja um "classic" herbergi eða "junior" svítu. Herbergin eru 18-20 fm og jr svítan 22-24 fm.

ANNAÐ
Hótelið býður uppá mjög skemmtilega þjónustu fyrir þá sem ekki stunda skíði eða vilja taka sér frí frá brekkunum og skoða sig um. Í eftirmiðdaginn er boðið uppá skoðunarferð um nágrennið og upp í fjöllin með innlendum fararstjóra þar sem gestum gefst kostur á því að sjá hvernig lífið gengur fyrir sig í Ölpunum. Ferð þessi er í boði hótelsins og fyrir alla aldurshópa. Hotel Campiglio Bellavista er einstaklega skemmtilegt og glæsilegt hótel sem óhætt er að mæla með.

MH 10.07

KORT