Residence Ambiez Madonna

Residence Ambiez er gott en einfalt 3 stjörnu íbúðahótel staðsett skammt frá Gröste lyftunni.  Á hótelinu er heilsurækt með sauna, sundlaug og tyrknesku baði. Þar er einng veitingahús og bar. Hótelið er staðsett mjög ofarlega í bænum og tekur því u.þ.b. 20-30 mínútur að ganga í bæinn.  Skíðarútan stoppar skammt frá hótelinu.

 Í minni íbúðunum, sem rúma allt að 4,  er svefnaðstaða fyrir tvo í herbergi sem er lokað frá stofunni með rennihurð.  Í stofunni er svefnsófi og aukarúm. Í stærri íbúðinni er svefnaðstaða fyrir allt að 5 manns. Þar er sama fyrirkomulag með svefnherbergið en stofan er stærri og þar eru tveir svefnsófar og aukarúm.  Íbúðirnar eru með eldhúsaðstöðu og gott baðherbergi.  Hentar fjölskyldum einkar vel.
KORT