Hotel Bertelli

UPPLIFUN
Hótel Bertelli er fyrsta flokks hótel, byggt og innréttað í fallegum Alpastíl. Falleg setustofa og bar með kamínu ásamt stórum og glæsilegum veitingasal. Lifandi tónlist er 2svar í viku. Bertelli er vel staðsett, ofarlega í miðbænum, örstutt frá skíðalyftu og hægt að renna sér heim að dyrum. Læstir skápar fyrir hótelgesti eru í skíðageysmslu.
AFÞREYING
Ný sundlaug í nýrri viðbyggingu með hvíldarstólum, nuddpotti, tyrknesku baði og hvíldarherbergi
VEITINGASTAÐUR
Mjög góður veitingastaður sem er opinn fyrir almenning er á hótelinu. Staðurinn er neðanjarðar sem gerir hann sérstakan og gæðin eru slík að Michelin stjarna er ekki langt undan.
VISTARVERUR
Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð í hlýlegum litum og teppalögð. Herbergin er m.a. með tveimur stólum og borði, gervihnattasjónvarpi, síma, smábar, baðsloppum og öryggishólfi. Flest herbergin eru með svölum. Internetaðgangur er á herbergjum. Innifalið hálft fæði.
KORT