Montana
UPPLIFUN
Notaleg fjölskyldurekin gisting í auðveldu göngufæri við miðbæinn. Lítill bar og heimilisleg setustofa. Morgunverðasalurinn er huggulegur og þaðan er fallegt útsýni upp í fjöllin.
VISTARVERUR
Rúmgóð herbergi með teppum á gólfi. Á herbergjunum er m.a. gervihnattasjónvarp, sími og öryggishólf. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, flest með sturtu en nokkur með baði og hárþurrku. Öll herbergi eru með svölum. Morgunmatur innifalinn.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er ný heilsurækt með sauna, tyrknesku baði, nuddpotti og hvíldaraðstöðu og kostar 15 evrur á dag. Hægt er að kaupa vikuaðgang fyrir 45 evrur. Greitt er fyrir heilsuræktina beint til hótelsins. Þráðlaust internet er á hótelinu. Um 150 m er í miðbæinn og um 100 m í skíðalyftur.
SJ 07.08