Milano
UPPLIFUN
Gott hótel staðsett í miðbæ Madonna í næsta nágrenni við kaffihús, veitingarstaði og stutt frá skíðalyftum. Á hótelinu er er gestamóttaka, setustofa með bar og veitingasalur.
AFÞREYING
Ágæt heilsuaðstaða m.a. sauna og slökunaraðstaða. Einnig er leikherbergi fyrir börnin m.a. fótboltaspil, borðtennis og sjónvarp.
VISTARVERUR
Rúmgóð og vel útbúin herbergi með viðargólfi. Snyrtileg baðherbergi með flíslum á gólfi, ýmist sturta eða bað. Á herbergjunum er m.a. sjónvarp, sími og hárþurrka. Flest herbegi hafa sér svalir.
VEITINGASTAÐUR
Eigendur leggja áherslu heimilislegt umhverfi, góðan mat og þjónustu. Á hótelinu er huggulegur veitingarstaður og bar með góðri setustofu.