Gott að vita
Ferðatilhögun
Vikulegt morgunflug til Innsbruck
frá 15. janúar til og með 26. febrúar 2010.
Flugið tekur um fjórar klst.
Fjallakrár og veitingastaðir
Stórir sem smáir veitingastaðir, sem bjóða allt frá hefðbundum
skíðamat eins og súpu og pasta upp fínustu steikur. Lífleg tónlist og heitir og
kaldir skíðadrykkir við allra hæfi.
Fjarlægðir
Fjarlægð milli Innsbruck og Madonna er rúmlega 220 km.
Stoppað er einu sinni á leiðinni upp í fjöllin.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Hraðbankar eru víða í bænum og þar er hægt að taka út peninga með
kreditkortum.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um
handfarangur (pdf).
Lyftukort
Verð á lyftukortum.
Auk þess eru greiddar 5 evrur fyrir hvern passa sem eru
endurgreiddar ef fólk skilar passanum áður en það fer. Margir nota hann sem
"tips" á hótelunum.
Læknir, spítali og apótek
Heilsugælsustöð í Madonna, rétt við Hótel Bonapace og apótek við
aðalgötuna.
Rafmagn
220 volt.
Samgöngur
Skíðarúta gengum um bæinn, án endurgjalds fyrir þá sem eru með
lyftukort.
Skíðaleiga
Margar skíðaleigur eru í bænum og gefur fararstjóri upplýsingar um
þær leigur, sem bjóða viðskiptavinum Úrvals-Útsýnar afslátt.
Skíðaskóli
Nokkrir skíðaskólar eru í Madonna. Fararstjóri gefur frekari
upplýsingar.
Skoðunarferðir
M.a. er boðið uppá ekta ítalska fjallaveislu, þar sem farið er með
í rútu og snjóbíl í "Fjósið" og dagsferð á skíðum til Marileva og Folgarita.
Dagskráin er auglýst á öllum hótelum. Ekki er hægt að greiða
skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis reiðufé - evrum.
Snjór / skíðafæri
Upplýsingar
um snjó og skíðafæri í Madonna di Campiglio.
Tímamismunur
Bætið 1 klst. við íslenskan tíma (jan.-mars). Upplýsingar um
tímamun í heiminum.
Veitingastaðir og krár
Í bænum eru fjölmargir veitingastaðir og kaffihús. Þegar komið er
niður úr fjallinu er fjöldi bara með heita skíðadrykki og dynjandi tónlist.
Vinsælir "après" skíðabarir eru t.d. La Stube di Frank Josef við hliðina á
Hubertus og Café Suisse.
Verslun
Í Madonna eru 2 matvörumarkaðir, annar í miðbænum gegnt Hotel
Hubertus.
Nokkuð úrval verslana með með tískufatnað, einnig sportbúðir og
verslanir með skart og minjagripi.
Tryggingar
Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af
stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.
Upplýsingar um
nýja kortið frá
Tryggingastofnun.
Vatn
Fínasta fjallavatn og óhætt að drekka beint úr krananum.
Þjónusta Úrvals-Útsýnar
Reyndir fararstjórar Úrvals-Útsýnar taka á móti farþegum á
flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Kynningarfundur er
haldinn í rútu á leið frá flugvelli.