Selva Val Gardena
Stærsta samfellda skíðasvæði í heimi
Selva Val Gardena er hluti af hinu stórbrotna svæði, sem kallast Dolomiti
Superski og er talið besta skíðasvæði heims.
Selva er fallegt fjallaþorp, þar sem ægifagrir tindar Dólómítanna bera við
dimmbláan himininn, sem oftast er skafheiður enda er svæðið einkar
sólríkt.
Líflegur bær þar sem heimamenn taka vel á móti skíðamönnum á hinum
fjölmörgu krám bæjarins með tónlist og ljúffengum drykkjum. Vinsælir
"après-ski" staðir eru Laurin Keller og Luis Keller við aðalgötuna í
bænum.
Fínustu kaffihús bjóða upp ilmandi kaffi, eða heitt súkkulaði og girnilegar kökur með þeyttum rjóma.
Tískuverslanir, sportbúðir og sælkeraverslanir ýmsu góðgæti eru í bænum, auk sérverslana, sem bjóða fallega hluti skorna úr tré.
Kláfarnir Champinoi og Dantecepies ganga upp úr bænum og eru öll
hótel Úrvals Útsýnar í göngufæri við kláfana. Lyftukostur er fyrsta
flokks, nýir og nýlegir kláfar. Heimamenn hugsa einstaklega vel um
brekkurnar, sem eru sólríkar og við allra hæfi.
Með því að kaupa lyftukort sem opnar aðgang að öllu Dolomiti
Superski svæðinu, fæst aðgangur að 450 lyftum og rúmlega 1000 km
brautum sem flestar eru samtengdar.
Enginn fer frá Selva án þess að skíða hinn vinsæla hring Sella Ronda
sem er góð dagsferð með úrvali af skemmtilegum skíðabrautum um
nágrannabæina Arabba, Canazei, Colfosco og Corvara.
Í Selva getur þú skíðað á nýju svæði sérhvern dag og fyrir þá
kjarkmeiri býðst þyrluflug á Marmolada jökulinn, sem er í yfir 3000
metra hæð og þaðan er skíðað alla leið heim á hótel.
Það toppar enginn Selva!
Dagsetningar í vetur
30. janúar
6. febrúar
13. febrúar
20. febrúar
27. febrúar
Sjá einnig
Skíðafæri
og veður í Selva Val Gardena