Hotel Residence Antares Selva
Hotel Residence Antares er annarsvegar 4 stjörnu hótel og hinsvegar 3 stjörnu íbúðahótel. Það er vel staðsett við aðalgötuna í Selva. Aðeins stuttur gangur Champinoi skíðakláfinn. Á hótelinu eru herbergi með 1/2 fæði, studioíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Stærri íbúðirnar rúma allt að 5 manns. Gestir í íbúðunum geta notað alla þjónustu sem er í boði á hótelinu. Á hótelinu er líkamsrækt, sundlaug, heilsurækt, bar og veitingahús. Gestir í íbúðum geta einnig keypt 1/2 fæði á hótelinu. Í íbúðunum er eldunaraðstaða, ísskápur, sími, sjónvarp og baðherbergi ásamt svefnaðstöðu fyrir 2-5 manns.