Hotel Carmen

Hotel Carmen er gott 3 stjörnu Superior hótel  staðsett miðsvæðis í St. Cristina. St. Cristina er nágrannabær Selva og tengist inná sama skíðasvæði.  Stutt er frá hótelinu (200 m) í lyftuna við Monte Pana en þaðan er örstutt að skíða yfir til Selva eða komast í hringinn um Sell Ronda. Skíðarútan stoppar í 50 metra fjarlægð frá hótelinu fyrir þá sem vilja skíða á öðrum svæðum.

Hótelið er innréttað á smekklegan hátt.  Herbergi voru endurnýjuð árið 2010 og eru rúmgóð með síma, sjónvarpi, öryggishólfi og rúmgóðu baðherbergi.  Ný heilsurækt með sundlaug og sauna. Líkamsræktaraðstaða.

Morgunverðarhlaðborð og kvöldverður í ekta týrólskum stíl. 

KORT