Hotel Aaritz
UPPLIFUN
Við gestamóttöku hótelsins er notaleg setustofa með arni og bar og liggur breiður stigi upp í huggulegan veitingasal á annarri hæð hótelsins, en maturinn á Aaritz þykir sérlega ljúffengur. Skíðalyftur eru beint á móti hótelinu.
AFÞREYING
Glæsileg heilsulind með sundlaug, tyrknesku baði og gufu. Frítt er í nuddpott og gufu. Aðra þjónustu er greitt fyrir á staðnum, m.a. sólbekk og nudd.
VISTARVERUR
Herbergin eru fallega innréttuð öll með setukrók og svölum. Baðherbergin eru ágætlega rúmgóð ýmist með baði eða sturtu Internetaðgangur er á herbergi.