Hotel Armin

UPPLIFUN
Vinalegt andrúmsloft er einkennandi á hótel Armin. Gestamóttakan er hugguleg með notalegri setustofu, bar og fallegum veitingarstað. Hótel með persónulegri þjónustu þar sem gestum líður vel. Innifalið er aðgangur að gufubaðinu en greitt 10 evrur á dag fyrir nuddpott.
VISTARVERUR
Nýuppgerð herbergi fallega innréttuð í ljósum litum. Herbergin eru rúmgóð með teppi á gólfum. Baðherbergi eru stór og þægileg og eru flísalögð í hólf og gólf. Öll herbergi með svölum nema fjölskylduherbergin. Internet aðgengi er á herbergi.
KORT