Hotel Somont

UPPLIFUN
Hótel Somont er innréttað með ljósum viðarinnréttinum í björtum litum. Setustofa er með arni og bar. Matsalurinn er bjartur og einkar notalegur. Bak við hótelið er "apré-ski" bar þar sem kveikt er upp í útiarni og síðdegis er spiluð tónlist þegar gestir koma heim af skíðum. Fjarðlægð frá skíðalyftu er um 200 m.
AFÞREYING
Aðgangur að snyrtilegri heilsurækt er innifalinn í verði, en þar er nuddpottur, sauna, tyrkneskt bað, ilmsturtur og legustólar.
VISTARVERUR
Stór og björt tveggja- og þriggjamannaherbergi með svölum. Einbýli eru frekar lítil að stærð og eru alltaf án svala. Falleg herbergi með ljósu viðargólfi, lítill setukrókur með stólum eða bekk. Baðherbergi eru flisalögð með sturtu og baðsloppar fylgja hverju herbergi.
KORT