Gott að vita um Selva

Þjónusta Úrvals-Útsýnar

Reyndir fararstjórar Úrvals-Útsýnar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Kynningarfundur er haldinn í rútu á leið frá flugvelli.

Afþreying

Tennishöll, skautahöll, keila, sleðaferðir í Seiser Alm, náttúrugripasafnið í Bolsano.

Ferðatilhögun

Vikulegt flugt í janúar og febrúar 2012.

Flugið tekur um fjórar klst.

Fjallakrár og veitingastaðir

Stórir og smáir veitingastaðir, sem bjóða upp á fjölbreytt úrval veitinga, með allt frá sjálfsafgreiðslu upp í fínustu þjónustu til borðs. Mikið úrval heitra og kaldra rétta. Jäger Tee, eggjapúns og ekta eplavínarbrauð, sem fæst með þeyttum rjóma að ógleymdu rauðvíni og grappa.

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.

Greiðslukort

Hraðbankar eru víða í Selva og því auðvelt að taka út peninga með kreditkortum.

Athugið að ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis reiðufé - evrum.

Handfarangur

Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf).

Lyftukort

Skoðaðu verð á lyftukortum.

Hægt að greiða lyftukort með kreditkorti.

Læknir – spítali og apótek

Apótek er við aðalgötuna í Selva og læknir á vakt allan sólarhringinn á heilsugæslunni bak við Hótel Oswald. Einkasjúkrahús er í húsinu fyrir neðan stóra skíðaskólann í Selva.

Rafmagn

220 volt.

Samgöngur

Skíða-rútan í Selva gengur um bæinn og einnig til Sta. Cristina, Ortisei og á skíðasvæðið í Col Raiser. Hér eru upplýsingar um skíðarútuna, verð og áætlun.

Skíðaleiga

Margar skíðaleigur eru í bænum og gefur fararstjóri upplýsingar um þær leigur sem gætu gefið viðskiptavinum Úrvals-Útsýnar afslátt.

Skíðaskóli

Sjá nánar um skíðaskóla.

Skoðunarferðir

Spennandi ferðir á borð við þyrluflug á Marmolada jökulinn, dagsferð til Cortina, Skíðahringurinn Sella Ronda o.fl.
Dagskráin er auglýst á öllum hótelum og fararstjóri veitir frekari upplýsingar á staðnum.
Ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis reiðufé - evrum.

Snjór / skíðafæri

Upplýsingar um snjó og skíðafæri í Selva Val Gardena.

Tímamismunur

Bætið 1 klst. við íslenskan tíma (jan.-mars). Upplýsingar um tímamun í heiminum.

Vatn

Fínasta fjallavatn og óhætt að drekka beint úr krananum á hótelunum en alls ekki má drekka kranavatn á veitingastöðum upp í fjalli.

Veitingastaðir og krár

Í bænum eru fjölmargir veitingastaðir og kaffihús. Þegar komið er niður úr fjallinu er fjöldi bara og veitingastaða með heita skíðadrykki við arineld og dynjandi tónlist. Vinsælir "après" skíðabarir eru Laurin Keller og Luis Keller við aðalgötuna í bænum.
Fínustu kaffihús með úrvali af girnilegum kökum og heitu súkkulaði með rommi og þeyttum rjóma.

Verslun

Tveir matarvöru markaðir, annar rétt við Hótel Oswald og hinn ofarlega í bænum, í um 5-10 mín göngufæri frá hótelunum. Verslanir með tísku- og skíðafatnað og "gourme"-verslanir. Einkenni staðarins eru þó fallegir hlutir, skornir úr tré og áhugavert er að líta við á skúlptúrsafninu UNIKA.
Úrval verslana er í nágrannabænum Ortisei og þangað er 20 mín. akstur með strætó eða leigubíl.

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðlag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.

Upplýsingar um nýja kortið frá Tryggingastofnun.

Önnur afþreying

TryggingarTennishöll, skautahöll, keila, sleðaferðir í Seiser Alm, náttúrugripasafnið í Bolsano.