Gott að vita um Selva
Afþreying
Tennishöll, skautahöll, keila, sleðaferðir í Seiser Alm, náttúrugripasafnið í Bolsano.
Ferðatilhögun
Vikulegt morgunflug til Innsbruck
frá 15. janúar til og með 26. febrúar 2010.
Flugið tekur um fjórar klst.
Fjallakrár og veitingastaðir
Stórir sem smáir veitingastaðir, sem bjóða upp á fjölbreytt úrval
veitinga, allt frá sjálfsafgreiðslu upp í fínustu þjónustu til borðs.
Mikið úrval heitra og kaldra rétta. Jäger Tee, eggjapúns og ekta
eplavínarbrauð, sem fæst með þeyttum rjóma að ógleymdu rauðvíni og
grappa.
Fjarlægðir
Fjarlægð frá Innsbruck til Selva eru tæplega 120 km.
Stoppað er einu sinni á leiðinni upp í fjöllin.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Hraðbankar eru víða í Selva og því auðvelt að taka út peninga með kreditkortum.
Athugið að ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis reiðufé - evrum.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf).
Lyftukort
Skoðaðu verð á lyftukortum.
Hægt að greiða lyftukort með kreditkorti.
Læknir – spítali og apótek
Apótek er við aðalgötuna í Selva og læknir á vakt allan
sólarhringinn á heilsugæslunni bak við Hótel Oswald. Einkasjúkrahús í
húsinu
fyrir neðan stóra skíðaskólann í Selva.
Rafmagn
220 volt.
Samgöngur
Skíða-rútan í Selva gengur um bæinn og einnig til Sta. Cristina,
Ortisei og á skíðasvæðið í Col Raiser. 6 daga kort kostaði 3 Evrur sl.
vetur (2005).
Skíðaleiga
Margar skíðaleigur eru í bænum og gefur fararstjóri upplýsingar um
þær leigur sem gætu gefið viðskiptavinum Úrvals-Útsýnar afslátt.
Skíðaskóli
Sjá nánar um skíðaskóla.
Skoðunarferðir
Spennandi ferðir, eins og þyrluflug á jökulinn Marmolada, dagsferð til Cortina, Skíðahringurinn Sella Ronda o.fl.
Dagskráin er auglýst á öllum hótelum.
Ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis reiðufé - evrum.
Snjór / skíðafæri
Upplýsingar um snjó og skíðafæri í Selva Val Gardena.
Tímamismunur
Bætið 1 klst. við íslenskan tíma (jan.-mars). Upplýsingar um tímamun í heiminum.
Vatn
Fínasta fjallavatn og óhætt að drekka beint úr krananum á hótelunum.
Má alls ekki drekka kranavatn á veitingastöðum upp í fjalli.
Veitingastaðir og krár
Í bænum eru fjölmargir veitingastaðir og kaffihús. Þegar komið er
niður úr fjallinu er fjöldi bara með heita skíðadrykki við arineld og
dynjandi tónlist. Vinsælir "après" skíðabarir eru Laurin Keller og Luis
Keller við aðalgötuna í bænum.
Fínustu kaffihús með úrvali af girnilegum kökum og heitu súkkulaði með rommi og þeyttum rjóma.
Verslun
Tveir matarvöru markaðir, annar rétt við Hótel Oswald og hinn
ofarlega í bænum, í um 5-10 mín göngufæri frá hótelunum. Verslanir með
tísku- og skíðafatnað og "gourme"-verslanir. Einkenni staðarins eru þó
fallegir hlutir, skornir úr tré, einkum styttur.
Úrval verslana er í nágrannabænum Ortisei og þangað er 20 mín. akstur með strætó eða leigubíl.
Tryggingar
Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað
í ferðlag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.
Upplýsingar um nýja kortið frá Tryggingastofnun.
Þjónusta Úrvals-Útsýnar
Reyndir fararstjórar Úrvals-Útsýnar taka á móti farþegum á flugvelli
og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Kynningarfundur er haldinn
í rútu á leið frá flugvelli.