Val Di Fiemme

Val di Fiemme er þekkt skíðasvæði í Dolomite fjöllunum. Svæðið er staðsett um 35 km norður af Trentino. Það stendur mjög hátt og er því hægt að skíða frá miðjum nóvember og fram í apríl. Fjölbreyttar brekkur við allra hæfi. Með einum skíðapassa er hægt að skíða á nýju svæði daglega. Sérstakt skíðasvæði er fyrir börn og byrjendur og snjóbrettaaðstaða mjög góð.

Gisting á Wellness hotel Shandrani en það er gott 4 stjörnu hótel. Hótelið er staðsett eitt og sér á rólegum stað skammt frá skíðasvæðinu. Ekið er með gesti hótelsins á skíðasvæðið á morgnana og heim í eftirmiðdaginn. Innifalið er ½ fæði (morgun- og kvöldverður) ásamt eftirmiðdagshressingu. Glæsileg heilsurækt er á hótelinu með innisundlaug, tyrknesku baði, gufu og líkamsræktarsal. Einstaklega hlýlegt og notalegt hótel.

http://www.visitfiemme.it