Hotel Shandrani
UPPLIFUN
Glæsilegt hótel í Dólómítafjöllum í Val di Femme dalnum. Gestir njóta dvalarinnar á þessum fallega stað þar sem allt er gert til að dvölin verði sem ánægjulegust jafnt utan hótels sem innan. Ekki má gleyma frábærum kvöldstundum með músik og gleði. Innifalið er 1/2 fæði (morgun- og kvöldverður) ásamt léttu snakki í eftirmiðdaginn þegar komið er inn á hótel eftir dvölina í fjöllunum. Akstur milli hótelsins og skíðasvæðisins innifalinn.
Frábært hótel fyrir fjölskyldur.
VEITINGASTAÐUR
Á hótelinu er góður veitingastaður þar sem framreiddur er kjarngóður morgunverður, frábær hádegisverður og glæsilegur kvöldverður.
AFÞREYING
Til að auka enn frekar á vellíðan gesta þá er góð aðstaða fyrir slökun og dekur. Á hótelinu er innisundlaug, tyrkneskt bað, nudd, gufubað og líkamsræktarsalur.
VISTARVERUR
Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og eru rúmgóð. Herbergin eru m.a. með sjónvarpi, síma, gervihnattasjónvarpi, smábar og öryggishólfi.