Hótel Kaktus Albir er frábært 4 stjörnu hótel. Hótelið var opnað í júní 2003 og er á besta stað í Albir, alveg á ströndinni með miðbæ Albir og listamannabæinn Altea í seilingarfjarlægð.
Hótelið er þægilega stórt með 203 herbergi og búið helstu þægindum sem prýða ný 4 stjörnu hótel nú til dags.
Herbergin eru vel búin, rúmgott baðherbergi með baði og sturtu, svölum, síma, og gervihnattasjónvarpi. Öll herbergi eru loftkæld, og jafnframt með eigin hitastillingu. Öryggishólf og minibar eru á öllum herbergjum.
Líkamsræktarsalur er á hótelinu ásamt gufubaði, nuddpotti og innisundlaug. Stutt í æfingasvæði (driving range) fyrir golfara.
Skemmti- og afþreyingardagskrá er alla daga og kvöld bæði utandyra og í rúmgóðum loftkældum sölum hótelsins. Hótelið er án vafa það besta í Albír og hefur fengið mikið lof þeirra sem þar hafa dvalið.
Okkar mat:
Glæsilegt nýlegt 4 störnu hótel. Frábær staðsetning á ströndinni í Albir. Stutt í veitingastaði og verslanir.