Hotel Dynastic
Hotel Dynastic er gott 4 stjörnu hótel staðsett u.þ.b. 500 metra frá Levante ströndinni á Rincón de Loix svæðinu. Fjöldi veitingahúsa, skemmtistaða og verslana eru í næsta nágrenni. Hótelið var opnað í maí árið 2005. Á hótelinu er glæsileg heilsulind með innisundlaug, líkamsræktaraðstöðu, nuddpotti ásamt snyrti- og nuddstofu. Góð aðstaða við útisundlaugina og leiksvæði fyrir börn. Skemmtidagskrá á kvöldin.
Herbergin eru öll með síma, sjónvarpi, öryggishólfi, aðgangi að internetinu, svölum og loftkælingu. Herbergin rúma að hámarki 2 fullorðna og 2 börn. Möguleiki á samtengdum herbergjum fyrir stærri fjölskyldur.
Á Dynastic er allur matur og drykkir innifaldir frá kl. 10 til miðnættis. Morgunverður, hádegisverður, kvöldverður og snarl á milli mála. Allir innlendir drykkir með mat og yfir daginn. Einnig er frír aðgangur að heilsulindinni.
Akstur:
Sumarferðir bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á
Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur
rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7
daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.