Las Terrazas del Albir
Hotel Las Terrazas del Albir er lítið og vinalegt íbúðahótel staðsett á rólegum stað í Albir. Hótelið var opnað árið 2006. U.þ.b 600 metrar eru að ströndinni og 300 metrar inn í miðkjarna Albir. Hótelið er staðsett skammt frá Albir Garden hótelinu fyrir þá sem þekkja til. Gestamóttaka er opin frá kl. 8 til kl. 23. Á hótelinu eru stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Studíóúbúðirnar rúma allt að 3 en íbúðir með einu svefnherbergi rúm allt að 4. Alls eru 4 hæðir á hótelinu. Lyftur.
Ibúðirnar eru snyrtilegar með loftkælingu og svölum/verönd. Ágætlega útbúið eldhús með helstu þægindum, eldavél, ísskáp, örbylgjuofni og brauðrist. Baðherbergi í studio er með sturtu en í íbúðunum er baðkar (með sturtu). Hægt er að leigja öryggishólf. Í sameiginlegri aðstöðu er lítill veitingastaður og bar, góð sólbaðsaðstaða og sundlaug. Þráðlaust internet aðgangur í sameiginlegri aðstöðu. Hægt er að leigja handklæði við sundlaugina fyrir 2,5 evrur á dag.
Íbúðirnar eru þrifnar tvisvar í viku og þá er einnig skipt á rúmum. Handklæðaskipti þrisvar sinnum í viku.