Albir Playa
UPPLIFUN
Góður veitingastaður er á hótelinu með suðrænan og alþjóðlegan mat. Lobby bar þar sem kokkteilar og drykkir eru bornir fram, kaffitería, léttir drykkir eru fáanlegir á sundlaugarbarnum og Chiringutio veitingastaðurinn er með léttan hádegismat. Hótelið býður gestum líf og fjör jafnt á daginn sem á kvöldin með fjölbreyttri dagskrá. Leikfimi, nuddpottur, gufubað, leiksvæði fyrir börnin er hluti af því sem er á vegum hótelsins.
VISTARVERUR
Á hótelinu eru um 200 herbergi nýtískuleg, hlýleg og smekklega innréttuð. Gott baðherbergi og svalir. Herbergin eru loftkæld.
Akstur: Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.