Paraiso Centro - Benidorm
Paraiso Centro er snyrtilegt og mjög vel staðsett íbúðahótel stutt frá gamla bænum í Benidorm. Einfaldar, snyrtilegar og rúmgóðar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baði, stofu og svölum sem snúa út í garð. Stutt er í alla þjónustu, t.d. matvörumarkaðinn Mercadona, banka og verslanir. Mjög góðir veitingastaðir eru í næsta nágrenni.
Athugið!
Lyklar að íbúðunum munu vera afhentir af fararstjóra á flugvellinum við komu.
Við komuna greiðist EUR 150 tryggingagjald fyrir íbúðina. Tryggingaféð er svo endurgreitt við brottför m.v. að íbúðin sé í lagi.
Íbúðirnar eru þrifnar við upphaf og lok dvalar. Ekki er þrifið á meðan á dvöl stendur.
Þá daga sem ekki er akstur í boði afhendir húsvörður í íbúð 13D lyklana af herbergjunum.
Hægt er að fá barnarúm og er gjaldið fyrir það 6 evrur á dag sem greiðist við komu á gististað.
Hægt er að leigja sólbekki og kostar bekkurinn 10 evrur fyrir vikuna.
Hámarksfjöldi í íbúð með 1 svefnherbergi: þrír fullorðnir og eitt barn
Hámarksfjöldi í íbúð með 2 svefnherbergjum: fjórir fullorðnir og tvö börn
Mjög vel staðsett og gott íbúðahótel fyrir alla aldurshópa með rúmgóðum og snyrtilegum íbúðum. Góður lokaður sundlaugagarður, sólbekkir gegn gjaldi.
Akstur: Sumarferðir bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á
Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur
rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7
daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.