Gott að vita um Alicante / Benidorm
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar, um ferðir til og frá flugvelli á gististaði erlendis, er þessi þjónusta nú valfrjáls og fyrir þá sem það kjósa.
Þeir sem vilja nýta sér akstur okkar erlendis með fararstjóra verða því að bóka og fullgreiða þjónustuna hér heima áður en lagt er af stað í ferð.
Athugið að ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Bílaleiga
Framvísa verður gildu, íslensku ökuskírteini og vegabréfi. Lágmarksaldur leigutaka er 23 ár og 2ja ára reynsla af akstri er áskilin.
Fararstjórar
Í sumar verða íslenskir fararstjórar á okkar vegum á Benidorm og eru þeir til þjónustu reiðubúnir fyrir farþega meðan á dvöl stendur. Undir þeirra leiðsögn gefst farþegum kostur á spennandi skoðunarferðum.
Ferðatilhögun og farangur
Flugtími er um 4 klst og 10 mín. til Alicanteflugvallar í beinu leiguflugi.
Athygli skal vakin á því að hámarks þyngd á farangri er 20 kg, golfsett, bretti og fl. þarf að greiða aukalega fyrir.
Fjarlægðir
Frá Alicante til Benidorm er um 40 mín. akstur og um 50 mín. akstur til Albir.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Greiðslukort ganga á flestum stöðum. Hraðbankar eru víða og þar er hægt að taka út peninga með debetkorti.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér.
Hitatafla
Meðfylgjandi tafla sýnir meðalhita en hiti getur verið breytilegur frá ári til árs.
| Hitastig |
apríl |
maí |
júní |
júlí |
ágúst |
sept. |
okt. |
| Á daginn |
21°C |
23°C |
27°C |
29°C |
30°C |
27°C |
23°C |
| Á nóttunni |
13°C |
15°C |
19°C |
21°C |
22°C |
20°C |
16°C |
| Í sjónum |
15°C |
17°C |
20°C |
24°C |
25°C |
24°C |
21°C |
Íþróttir
Golfvellir og vatnasport.
Læknisþjónusta
Læknisþjónusta er góð og veita fararstjórar nánari upplýsingar ef þarf.
Rafmagn
220 volt.
Samgöngur
Auðvelt er að ferðast um á Spáni. Vinsælt er að taka bílaleigubíl a.m.k. hluta dvalartímans. Auðvelt er að ná í leigubíla og strætisvagna- og rútusamgöngur eru góðar. Það kostar um 80 kr. að taka strætisvagn frá Benidorm til Albir og um 270 kr. frá Benidorm til Alicante. Far með leigubíl frá Benidorm til Albir kostar um 700 kr.
Skemmtanalíf
Einn glæsilegasti næturklúbbur Spánar er Benidorm Palace. Góðir skemmtikraftar, fjöllistamenn, söngvarar og dansarar töfra fram óborganleg atriði
Strandlíf
Á Benidorm eru frábærar sandstrendur við bæjardyrnar og steinvöluströnd á Albir.
Tímamismunur
Skoðaðu hvað klukkan er víðsvegar í heiminum með því að fara inn á þennan vef . Bætið 2 klst. við íslenskan tíma (apr. - okt.).
Veitingastaðir
Fjölbreyttir veitingastaðir eru á Benidorm, Albir og í nágrenni.
Verslun
Ný og glæsileg verslanamiðstöð, La Marina, er á Benidorm. Hún er staðsett við hliðina á Carrefour (áður Continente) og þar má finna úrval góðra verslana á borð við Zara, Mango, Pull and Bear, Massimo Dutti o.fl. þekkt vörumerki.
Þjónusta
Þjónusta Úrvals-Útsýnar: Fararstjórar Úrvals-Útsýnar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma fararstjóra eru í upplýsingamöppum hótelanna.