Tyrkland - Antalya

Hin unaðslega Lara strönd.

Antalya og nágrenni er einn eftirsóttasti áfangastaður Evrópubúa og hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Þar fer saman skínandi sól, fallegar strendur, mikil náttúrufegurð, góður matur og einstök gestrisni heimamanna. Antalya liggur við samnefndan flóa á suðurströnd Tyrklands. Miðjarðarhafið glitrar í sólinni en í fjarska glittir í Taurus-fjallgarðinn í bláleitri móðu.

Gamalt borgarvirki

Borgin byggðist upp frá gamla borgarvirkinu, Kaleici, og veggur sem umlykur gamla hlutann er kílómetri að lengd. Gaman er að rölta um þröngar og brattar götur gamla bæjarins, hvíla sig á einhverju af hinum mörgu kaffihúsum eða fiskiveitingastöðum á klettunum þar sem útsýnið yfir flóann er yndislegt. Í miðborginni er fjöldi veitingastaða og verslana þar sem verðlag er mjög hagstætt.

Þrjátíu fornar borgir

Í nágrenni Antalya er hægt að skoða helstu staði vestrænnar menningarsögu en við flóann eru rúmlega þrjátíu fornar borgir frá tímum Grikkja og Rómverja. Í fjöllunum er hægt að stunda göngur eða fara í siglingu niður fljótin sem renna til sjávar við Antalya.

Strendurnar  
Út frá Antalya eru margar glæsilegar strendur þar sem aðstaða fyrir ferðamenn er eins og best verður á kosið. LARA ströndin er víð og breið og liggur austur af Antalya borg. KUNDU strandlengjan tekur við í framhaldi af LARA og teygir sig enn austar.

Við strendurnar standa 5 stjörnu glæsihótel í röðum þar sem sum minna meira á hallir en hótel, eins og hið stórglæsilega hótel  Mardan Palace austast við KUNDU.  Við Kundu er einnig hótel Kervansaray Kundu.
Við LARA ströndina eru hótelin Concorde Deluxe Resort & Spa, Limack Lara og Kervansaray Lara. Hótelin eiga það sameiginlegt að vera öll 5 stjörnu með "allt" innifalið og er hvert hótel og garðurinn heimur út af fyrir sig.
Auðveldar og ódýrar samgöngur eru á milli strandarinnar og Antalya með Dolmusum (strætó).

Golf á Antalya

Tyrkland hefur margt upp á að bjóða ásamt einum af bestu golfsvæðum Evrópu.

meira

Tyrkland í hnotskurn

Tyrkland tilheyrir bæði Evrópu (3%) og Asíu (97%). Landamæri landsins markast af Sýrlandi, Íran, Írak, Armeníu, Georgíu, Búlgaríu og Grikklandi. Stór hluti landsins liggur að hafi. Norðurhlutinn liggur að Svartahafi, vesturströndin að Eyjahafi og suðurströndin að Miðjarðarhafi.

meira