Bahia Lara

Stórglæsilegt nýtt 5 stjörnu hótel staðsett við Lara ströndina í Antalya.  Á hótelinu eru fimm veitingastaðir, fjórir barir, og þrír snarl-barir. Glæsileg heilsurækt með sauna, tyrknesktu baði, nuddpottum, snyrti- og nuddstofa ásamt afslöppunarherbergjum.   Á hótelinu eru 4 sundlaugarsvæði.  Aðal sundlaugin er 2000 fm, en einnig er að þar að finna sérstaka sundlaug fyrir börn, sundlaug með 3 stórum rennibrautum og einnig litla sundlaug sem er örlítið upphituð.  Skemmtidagskrá við sundlaugina á daginn og mismunandi skemmtanir á kvöldin.  Á hótelinu eru einnig þrír tennisvellir, körfuboltaböllur, lítill fótboltavöllur og frábær aðstaða á ströndinni fyrir strandblak.  Einnig er hægt að fara í billiard, borðtennis, boccia, leikfimi, sundleikfimi og í keilu á hótelinu.  Fyrir börnin er starfandi barnaklúbbur fyrir börn á aldrinum 4-12 ára.  Á Baia Lara  ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.  Opið beint úr garðinum út á strönd.  Allur matur og innlendir drykkir innifaldir.


VISTAVERUR
Herbergin eru rúmgóð og björt.  Þau eru 28-32 fermetrar að stærð en fjölskylduherbergin eru 35-40 fm.  Hægt er að fá herbergi sem eru sérútbúin fyrir fatlaða.  Öll herbergi eru með góðu baði, síma, minibar, sjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi. Flest herbergjanna eru með svölum eða verönd en einstaka herbergi eru með svokölluðum frönskum svölum en þá er eingöngu hægt að opna út.....Hægt er að kaupa herbergi með sjávarsýn.  Aðgangur að internetinu er á öllum herbergjum (snúra).

Baia Lara er stórglæsilegt nýtt hótel sem hægt er að mæla með.
Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Byggt árið (2009)
Fjöldi herbergja (399)
Fjöldi hæða (7)
Stjörnur (5)
Gestamóttaka (Já)
Hentugt fyrir fatlaða (Já)
Lyftur (true)

AÐSTAÐA

Aðgangur að tölvu (Já)
Barnadagskrá (Já)
Barnalaug (Já)
Billjarð (Já)
Garður (Já)
Heilsulind (Já)
Leiktækjasalur (Já)
Nuddpottur (Já)
Sauna (Já)
Skemmtidagskrá (Já)
Sólbekkir (Já)
Sundlaug (Já, 4)
Tennisvöllur (Já)
Veitingastaður (Já)
Bar (true)

VISTARVERUR

Gervihnattasjónvarp (Já)
Hárþurrka (Já)
Loftkæling (Já)
Minibar (Já)
Öryggishólf (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7 x)
Handklæðaskipti (7 x)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (Er við strönd)

HEIMILISFANG