Hotel Limak Lara
UPPLIFUN
Austur af Antalya, á Lara ströndinni, stendur gæsilegt hótel í gróðursælu umhverfi við gyllta einkaströnd. Á hótelinu er góð innisundlaug með vatnsrennibraut og þremur jacuzzi pottum. Sundlaugagarðurinn er 8.000 fermetrar með vatnsrennibrautum, tveimur barnalaugum og sérstökum barna rennibrautum. Heilsuræktaraðstaða, tækjasalur, tyrkneskt bað og sauna ásamt fjölbreyttu úrvali af dekurmeðferðum. Skemmtidagskrá er bæði á daginn og á kvöldin, næturklúbbur, verslanir, snyrtistofa og heilsulind.
AÐSTAÐA
Fimm veitingastaðir eru á hótelinu, ítalskur, indverskur, mexikóskur og japanskur. Á barnum er hægt að fá sér léttar veitingar, kaffi og kökur eru á Cafe Bonjour. Á hótelinu er starfræktur barna- og unglinga klúbbur með sérstakri sundlaug fyrir börnin. Internetkaffi fyrir gesti, tennisvöllur og á ströndinni fyrir framan hótelið er hægt að stunda fjölbreyttar vatnaíþróttir. Köfunarskóli er starfræktur allt árið um kring rekinn af kennurum með full réttindi. Spennandi kostur fyrir þá sem vilja kafa og skoða kórallrif og lífið á hafsbotni.
Nýtískulega innréttuð gæða herbergi í japönskum stíl. Rúmgóð herbergi loftkæld og með öllum þægindum. Gott baðherbergi.
ATHUGIÐ
Þeir sem vilja halda herbergjum sínum fram yfir hefðbundinn útskráningartíma, sem er á hádegi, þurfa að óska eftir því í afgreiðslu hótelsins og greiða fyrir það. Hótelið áskilur sér rétt til að rukka fyrir máltíðir eftir hefðbundinn útskráningartíma
Athugið að öryggisgæsla á hótelum okkar í Antalya er mjög ströng og utanaðkomandi komast ekki inn á hótelin. Þannig getur vinafólk ekki heimsótt hvort annað á milli hótela.
FYRIR BÖRNIN
Á hótelinu er barnaklúbbur sem er opin frá 10:00 - 12:30 og 14:00 - 18:00, minidiskó sem er á kvöldin frá kl. 20:00 - 20:30. Á hótelinu er boðið upp á barnapössun og kostar klukkutíminn um 15 evrur, en ath. að panta þarf hana með eins dags fyrirvara í gestamóttöku.