Concorde Resort & Spa

UPPLIFUN

Allt sem þú þráir - og allt innifalið! Lúxus gisting í hóteli sem líkist Concorde-flugvél, dýrindis matur og drykkur, einkaströnd, stór sundlaugargarður með 5 sundlaugum og barnaklúbbur. Þú slappar af og tæmir hugann í heilsulindinni, eða færð útrás í heilsuræktinni og vel búinni íþróttaaðstöðunni.


VISTARVERUR

Öll herbergi eru ágætlega rúmgóð og á þeim er að finna öll helstu þægindi eins og síma, smábar með gosdrykkjum og safa, öryggishólf, svalir, gervihnattasjónvarp, internetaðgang og loftkælingu. Herbergi geta verið misstór og herbergi með sjávarsýn eru heldur minni en herbergi, sem snúa yfir götu.

Á baðherbergjum eru hárþurrka og sími.


AÐSTAÐA

Í stórum sundlaugargarðinum eru 5 sundlaugar og vatnsrennibraut (opin frá 10-12 og 14-18) og sérstakt svæði fyrir börnin. Skemmtiatriði fyrir börnin eru í gangi allan daginn á sumrin, en dregur úr þegar komið er fram í október.

Á einkaströndinni, sem er við hótelið eru sólhlífar, sólstólar, strandhandklæði og dýnur í boði án endurgjalds.

Carpe Diem Spa heilsulindin er friðsælt 2.800 m2 athvarf frá amstri dagsins. Takmarkið er að gestirnir nái innri sem ytri ró, með fjölbreyttum heilsu-, dekur- og snyrtimeðferðum (gegn gjaldi). Meðal þess sem í gestum stendur til boða má nefna tyrkneskt bað (hamam), gufubað, sauna, leirböð, og mjög fjölbreyttar tegundir af nuddi. Einnig er innilaug og nuddpottur.

Fyrir þá sem vilja hreyfa sig er úr nógu að velja; tveir upplýstir tennisvellir, vellir fyrir bæði blak og strandblak, körfuboltavöllur og völlur til að spila strandfótbolta. Auk þess er heilsurækt á hótelinu með öllum helstu tækjum.

Af annarri aðstöðu mætti telja hársnyrtistofu, snyrtistofu og skartgripaverslun (gegn gjaldi).


AFÞREYING

Á daginn eru gjarnan skipulögð létt mót í ýmsum leikjum eða íþróttum fyrir gesti, en á hótelinu er aðstaða til að spila tennis, borðtennis, pílukast, blak, strandblak, körfubolta, strandfótbolta, keilu og billjarð. Í sjónum er svo hægt að prófa ýmislegt spennandi, eins og köfun, vatnaskíði, sjó-kött og margt margt fleira.

VEITINGASTAÐIR

Fjögur veitingahús og einn hlaðborðsstaður tryggja að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Asiana sérhæfir sig í austurlenskum mat, japönskum og kínverskum, Da Vinci er með ítalska rétti, Poseidon sjávarrétti, Dafne býður upp á hefðbundinn tyrkneskan mat á meðan Le Buffet er með morgunverðar-, hádegis- og kvöldverðarhlaðborð. Dafne og Poseidon eru útiveitingastaðir og fer eftir veðri hvort og hvenær þeir eru opnir.

Athugið að á a la carte veitingastaðina er aldustakmark 7 ára, en smáfólkið fær alltaf inni á hlaðborðsstaðnum Le Buffet.

Víðs vegar um hótelið eru átta barir og kaffihús með mismunandi áherslur. Á Vinario er mikið úrval vína, Habana leggur mest upp úr að bjóða dýrindis vindla og Café Mundo er með mikið úrval af tei og spennandi kökum.


FYRIR BÖRNIN

Sérstakur barnaklúbbur, Dombo Mini Club, er rekinn á hótelinu fyrir börn á aldrinum 4-7 og 8-12 sem er opin frá 10:00 - 12:00 og 14:00 - 17:00 og er stórt svæði í garðinum ætlað börnum. Einu sinni í viku fá börnin að taka þátt í að setja upp sérstaka sýningu. Þess á milli sér starfsfólkið um sýningar og skemmtiatriði.

Á hótelinu er boðið upp á barnapössun og kostar klukkutíminn um 20 evrur, en ath. að panta þarf hana með eins dags fyrirvara í gestamóttöku.

Hægt er að fá barnarúm ef óskað er og barnagæsla stendur til boða.


STAÐSETNING

Hótelið stendur við Lara ströndina, 16 km (um 25 mín.) frá Antalya. Á vegum hótelsins eru ferðir til miðborgar Antalya en sætaframboð er takmarkað. Þeir sem ekki geta nýtt sér þessar ferðir geta tekið leigubíl sem kostar um 15-20 evrur hvora leið.


ALLT INNIFALIÐ

Á þessu glæsilega hóteli er allt innifalið - matur og drykkur, herbergisþjónusta, smábar með gosdrykkjum og safa, nettenging, að hluta aðgangur að heilsurækt og íþróttaaðstöðu. Athugið að greiða þarf fyrir dekur og snyrtingu í heilsulindinni. Sjá nánar á vef hótelsins.


ATHUGIÐ

Þeir sem vilja halda herbergjum sínum fram yfir hefðbundinn útskráningartíma, sem er á hádegi, þurfa að óska eftir því í afgreiðslu hótelsins og greiða fyrir það. Hótelið áskilur sér rétt til að rukka fyrir máltíðir eftir hefðbundinn útskráningartíma


Athugið að öryggisgæsla á hótelum okkar í Antalya er mjög ströng og utanaðkomandi komast ekki inn á hótelin. Þannig getur vinafólk ekki heimsótt hvert annað á milli hótela.


SJ/GS 07/09

KORT