Gott að vita um Antalya
Bankar
Bankar eru opnir frá mánudögum til föstudags kl. 08:30 - 12:00 og 14:00 - 17:00. Lokað er á laugardögum, sunnudögum og almennum hátíðisdögum. Hægt er að skipta ferðatékkum í bönkum gegn 3-8% þóknun, þóknunin er misjöfn milli banka.
Dolmus
Litlir strætisvagnar sem aka á öllum aðalvegum til og frá miðbænum kallast dolmus á tyrknesku. Fyrir lítinn pening er hægt að ferðast með þeim á vit nýrra staða og nýrra ævintýra í borginni. Vagnarnir fylgja ekki ákveðinni tímatöflu og það er nóg að standa við vegarbrúnina og veifa þegar vagninn nálgast.
Gjaldmiðill
Tyrknesk líra skiptist í 100 kurush. Tyrkland er eitt af þeim löndum sem hefur hvað hæsta verðbólgu. Tyrkir tóku núllin af gjaldmiðli sínum um áramótin 2004 -2005.
Gjaldmiðillinn í Tyrklandi er Ný Tyrknesk Líra, (TRY) Reiknaðu út gengið á Oanda
Greiðslukort
Tekið er við greiðslukortum á flestum stöðum en yfirleitt ekki á litlum veitingahúsum og verslunum. Hraðabankar eru víða og eru þeir opnir allan sólarhringinn.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur .
Tyrkneskt kaffi
Gleymið ekki að bragða tyrkneska kaffið. Það er tiltölulega sterkt kaffi með korgnum í og er borið fram í litlum bollum. Samkvæmt því sem Tyrkir segja sjálfir á það að vera "sætt sem ástin, heitt sem í helvíti og svo þykkt að maður á að geta gengið á yfirborði þess".
Moskur
Flestir Tyrkir eru múslimar og guðshús þeirra heita moskur. Í íslamstrú ber að biðja fimm sinnum á dag. Áður en gengið er inn í moskur verður að fara úr skónum, hylja berar axlir og hné og konum ber að hylja hárið.
Ónæmisvarnir
Landlæknisembættið veitir upplýsingar um hvaða bólusetningar eru æskilegar ef ferðast skal. Hafa þarf nokkurn fyrirvara á bólusetningum.
Rafmagn
Er 220 volt.
Almenningssamgöngur og strætisvagnar
Góðar rútusamgöngur eru á milli staða í Tyrklandi. Fólksflutningamiðstöð eða rútumiðstöð heitir otoga á tyrknesku. Í borgum ganga svokallaðir smávagnar öðru nafni dolmusvagnar.
Tungumálið
Tyrkneska stafrófið hefur 29 bókstafi og hefur verið ritað með latnesku letri síðan 1923 er arabíska letrið var aflagt. Það er þó nokkur munur á því og okkar stafrófi. Sumir stafir hafa sérstök merki til að sýna mismunandi framburð. Þá eru samhljóðarnir Q, W og X, sem algengir eru í rómönskum málum og t.d. ensku, ekki til í tyrknesku.
Þjónusta Úrvals-Útsýnar
Fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru fólki innan handar alla ferðina.