Skoðunarferðir
Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.
Allar ferðir eru greiddar í Evrum. Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.
Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.
Side, Perge og Aspendos
Skoðunarferð í fornar borgir nálægt Antalyu.
Höfnin í Side var ein sú mikilvægasta í Pamphylia eins og héraðið hét hér áður fyrr. Á 2. og 3. öld f.K. var Side aðal mótstaður sjóræningja og á sama tíma var þar mjög veigamikill þrælamarkaður. Side virðist hafa verið uppbyggt 1000 árum f.K. Á tímum Rómverja var Side ríkt hafnarsvæði og hafði þýðingarmikinn her á 3 öld e.K. Eftir fall Rómverska keisaradæmisins gegndi Side ekki eins mikilvægu hlutverki og áður. Segja má að Perge sé andstæðan við Side þar sem fyrstu íbúarnir leituðu að bæjarstæði sem væri á hæð og auðverjanleg fyrir árásum sjóræningja. Mikilvægt var þó að borgin hefði opna siglingarleið frá sjó en það veitti áin Aksu. Síðar þegar áin grynnkaði missti borgin mikilvægi sitt og siglingarleiðin lokaðist. Samkvæmt gömlum heimildum var borgin Aspendos byggð upp af spámönnunum Calchas og Mopsos sem voru þá á flótta frá orustunni í Troju.
Verð: € 45,-
Innifalið:Akstur, fararstjórn, aðgangseyrir og hádegisverður. Drykkir ekki innifaldir.
Brottför: um kl. 08:30 og áætluð koma á hótel um kl. 17:00.
Antalya - borgarferð
Farið verður að gamla borgarhliðinu sem reist var árið 130 e.kr. sem sigurtákn Hadríans keisara í Róm. Þaðan er gengið í gegnum gamla bæinn niður að höfninni. Farið verður í Alaettin moskuna, sem soldáninn Alaettin lét gera úr býsanskri kirkju sem reist var á 7. öld. Einnig verður komið við hjá Kesik kallturninum en hann er það eina sem enn stendur uppi af gamalli mosku sem eyðilagðist árið 1851 þegar eldingu laust niður í bygginguna. Moskan hafði áður verið kirkja, helguð Maríu guðsmóður, sem reist var á 5. öld.
Þeir sem vilja geta verið eftir í bænum.
Verð: € 25,-
Innifalið: Ferðir og íslensk fararstjórn.
Brottför: um kl. 13:00 og áætluð koma á hótel um kl. 16:00.
Sigling með strönd Antalya
Dagur á sjó, sigling meðfram ströndum Antalya þar sem við sjáum borgina frá nýju sjónarhorni.
Stoppað verður til að gefa þeim sem vilja færi á að stinga sér til sunds. Farþegar þurfa sjálfir að koma með handklæði og baðföt.
Verð: € 35,-
Innifalið: Akstur , sigling og hádegisverður. Drykkir ekki innifaldir.
Brottför: um 09:45 og áætlað að koma til baka á hótel um kl: 17:00.
Þorpsferð
Brottför kl. 09:30. Ekið verður í um 50 mín. að Camili fjallaþorpinu, þar sem farið verður í gönguferð og gefst kostur á að kynnast þorpslífinu, skoða gömul hús, mosku og fá smá innsýn í Islam. Skoðuð verður teppaverksmiðja þar sem teppin eru hnýtt og ofin, en Camili er þekkt fyrir teppaframleiðslu sína. Snæddur verður léttur hádegisverður í þorpinu.
Verð: €40
Innifalið: Akstur, íslensk fararstjórn og léttur hádegisverður. Drykkir ekki innifaldir.