Belek - Tyrklandi
Sueno : 5 stjörnu golfævintýri
Sueno hótelið í Belek, Tyrklandi er sannkallaður ævintýraheimur kylfingsins. 5 stjörnu lúxusgisting og tveir 18 holu vellir við hótelið.
Hótelið sem var tekið í notkun árið 2007 er allt hið glæsilegasta.
Öll herbergi eru búin öllum helstu þægindum sem prýða 5 stjörnu hótel. Heilsulind með upphitaðri sundlaug sem nær innan úr heilsulindinni út í sundlaugargarðinn. Tyrkneskt SPA með öllu tilheyrandi. Sérlega glæsilegt morgun og kvöldverðahlaðborð. Sólarhringsvakt á barnum og þráðlaust gjaldfrítt internet.
Golfið
Golfvellirnir eru staðsettir við hótelið. Pines par 72, 6.013 metrar af gulum og 5.032 af rauðum og Dunes par 69, 5.282 metar af gulum og 4.072 af rauðum. Báðir vellirnir eru skógarvellir með skemmtilegu landslagi í brautunum og frábærum flötum. Öll umhirða við vellina er fyrsta flokks. Stórt æfingasvæði þar sem hægt er að velja um að slá af mottum innan úr skýli eða af grasinu fyrir framan. Vipp flöt með sandgryfjum og púttsvæðið eitt það stærsta sem við höfum fundið.
Frá flugvellinum í Antalya eru aðeins 30 km.