Tyrkland - Bodrum
Velkomin(n) ! Þetta orð lýsir í hnotskurn hvernig Tyrkir hugsa um gesti sína. Ferðamenn eru gestir í þeirra landi og allir eru velkomnir. Tyrkland liggur á mörkum Evrópu og Asíu og þar mætast menningarheimar tveggja heimsálfa í fjölbreyttu mannlífi, spennandi matargerð, framúrskarandi þjónustu og einstakri gestrisni.
Úrval-Útsýn eykur enn á fjölbreytnina og býður nú Íslendingum ferðir til Bodrum í Tyrklandi. Bodrum er vinsæll ferðamannabær í suðvesturhluta Tyrklands. Svæðið samanstendur af nokkrum smábæjum sem hver og einn stendur við sína vík. Gumbet bærinn er staðsettur u.þ.b. 5 km frá miðbænum í Bodrum. Þar er iðandi mannlíf, fjöldi verslana og veitingahúsa og fjölbreytt næturlíf. Torba stendur í 7 km fjarlægð frá Bodrum og er allt umhverfið mun rólegra en þó er öll sama þjónusta til staðar. Turqitreis, sem jafnframt er nærst stærsti bærinn á Bodrum skaganum, býður uppá frábæra aðstöðu við ströndina ásamt fjölbreyttu úrvali verslana og veitingahúsa. Strætisvagn (Dolmus) gengur á milli svæðanna.
Í Bodrum er úrval af afþreyingu fyrir alla. Þar eru tveir vatnsrennibrautagarðar, skemmtilegir útimarkaðir, fjölbreytt úrval vatnaíþrótta, skemmtilegt næturlíf, bátsferðir, jeppasafarí og fyrir fróðleiksfúsa eru víða merkar fornminjar að finna. Margir sögufrægir staðir eins og Mausoleum, Ephesus, hús Maríu meyjar, sem eru í hópi merkustu borgarústa heims, eru í akstursfjarlægð frá Bodrum. Bodrum kastalinn sem m.a. hýsir neðansjávarfornminjar, er einstaklega fallegur og skemmtilegur að skoða.