Aegean Dream Resort Hotel

UPPLIFUN

Aegean Dream Resort Hotel er glæsilegt hótel staðsett alveg við ströndina í Turgutreis.  Hótelið er staðsett 1 km frá miðbænumí Turgutreis og 20 km frá miðbænum í Bodrum.

Á hótelinu er mjög fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.  Á morgnana er fjölbreytt leikfimi fyrir hótelgesti ásamt sérstakri skemmtidagskrá fyrir börnin.  Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, borðtennis, leiktækjasalur og margt fleira. Þar er einnig glæsileg heilsulind með sauna, sundlaug, gufubaði og Tyrknesku baði. Aðgangur að heilsulind er innifalinn en greiða þarf sérstaklega fyrir þjónustu eins og nudd og snyrtingu.  Á hótelinu er 5 veitingastaði, þar af einn alþjóðlegur, Ítalskur og sjávarréttastaður.   Örstutt er frá Turgutreis bænum yfir til Grísku eyjunnar Kos og gengur ferja þar á milli.

VISTARVERUR

Herbergi hótelsins eru i tveimur byggingum.  Annarsvegar er um að ræða herbergi sem heita Dream Resort og hinsvegar Dream Select.  Dream Resort herbergin eru 183 talsins og staðsett í aðalbyggingunni og snúa út að sjó eða út í garð.    Þau er vel búin helstu þægindum, loftkælingu, öryggishólfi, minibar, sjónvarpi, síma, hárþurrku og svölum eða verönd.
Dream Select herbergin eru staðsett í minni byggingu og snúa öll út að sjó.  Sérstök sundlaug, bar og veitingstaður er fyrir þennan hluta hótelsins. Herbergin eru búin öllu sömu þægindum og Dream Resort herbergin auk þess að bjóða uppá frítt þráðlaust internet, DVD spilara, 24 tíma herbergjaþjónustu og a la carte morgun-, hádegis- og kvöldverð.  Hægt er að fá Dream Select fjölskylduherbergi og eru þau þá rúmbetri.  Aðgangur að Playstation tölvu í fjölskylduherbergjum (Dream Select).  Gestir á Dream Select geta valið úr veitingastöðum hótelsins.

AÐSTAÐA

Frábær aðstaða er fyrir hótelgesti í garðinum og í kringum sundlaugarnar sem eru tvær.  Einnig er góð barnalaug, bæði inni og úti ásamt skemmtilegum  vatnsrennibrautum fyrir börn og fullorðna.  Gott leiksvæði fyrir yngstu börnin. Hótelið stendur alveg við sjóinn og býður uppá þjónustu fyrir  á  ströndinni. Þar er bar og handklæðaþjónusta fyrir hótelgesti.  Á Aegean Dream er allt innifalið þ.e. morgun-, hádegis- og kvöldverður, innlendir áfengir og óáfengir drykkir og snarl á milli mála.  Hótelgestum stendur til boða fjölbreyttar vatnaíþóttir án endurgjalds. Þó þarf að greiða sérstaklega fyrir vélknúin tæki á ströndinni.

Aegean Dream er hreint frábært fjölskylduhótel sem býður uppá fjölbreytta dagskrá og skemmtun fyrir alla aldurshópa.  Aðstaðan við hótelið og ströndina er til fyrirmyndar.