Hotel Samara

UPPLIFUN
Hotel Samara er staðsett í útjaðri Bodrum eða í bænum Torba sem er fyrsti bæjarhlutinn sem komið er inní þegar keyrt er frá flugvellinum inn til Bodrum.  Hótelið stendur við ströndina og liggur garðurinn alveg að sjónum.  Umhverfið í kring er rólegt og hótelið í alla staði mjög þægilegt og gott fyrir fjölskyldur.
Miðbær Bodrum er í 8 km fjarlægð.


VISTAVERUR
Á hótelinu eru 250 herbergi sem snúa ýmist út í garð, út að sjó eða út að sundlaug.  Öll herbergi eru loftkæld, með öryggishólfi, sjónvarpi, síma, minibar og svölum eða verönd.  Hægt er að fá tvö herbergi með opið á milli.

ÞJÓNUSTA
Þráðlaust internet er í sameiginlegri aðstöðu.  Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir alla fjölskylduna,   minigolf, tennis, körfubolti, strandblak og fjöldi skemmtilegra vatnaíþrótta við ströndina.  Frábær hótelgarður með einkaströnd beint fyrir framan hótelið.  

Á Samara er allt innifalið, morgun-, hádegis- og kvöldverður ásamt snarli á milli mála. Allir innlendir drykkir innifaldir.
Frábær skemmtidagskrá fyrir börnin.  Á hótelinu er heilsulind með nuddpotti, sauna og Tyrknesku baði. Fimm barir eru á hótelinu, bæði inni og úti og barþjónusta frá hótelinu er við ströndina.