GOTT AÐ VITA UM TYRKLAND
FERÐATILHÖGUN, FARARSTJÓRN OG ÖRYGGISREGLUR
Flogið er í beinu
leiguflugi til Milas. Flugið tekur 5 ½ klst. Þaðan er ekið í loftkældri rútu
til Bodrum og tekur ferðin um 35 mínútur.
Íslenskir fararstjórar
okkar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan
dvalartímann.
Akstur til og frá
flugvelli erlendis er valkvæð þjónusta. Þeir sem vilja nýta sér aksturinn
erlendis bóka og fullgreiða þjónustuna hér heima áður en lagt er af stað í
ferð.
Við bendum farþegum sem þurfa á súrefni að halda um borð í millilandaflugi að
kynna sér reglur viðkomandi flugfélags.
HANDFARANGUR
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf) .
GJALDMIÐILL, VERÐLAG OG VERSLUN
Gjaldmiðill er tyrknesk líra (TRY) en víða er tekið við evrum. Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort eru tekin
víðast hvar nema í litlum veitingahúsum og verslunum. Hraðbankar í miðbænum eru
opnir allan sólarhringinn.
Verslun í Bodrum er
hreinasta skemmtun. Bærinn er fullur af basörum, útimörkuðum og götusölum.
Einkum er hagkvæmt að kaupa tyrknesk teppi og dregla, skinn- og leðurvörur,
gull- og silfurvörur, merkjavörur í fatnaði, skó, úr, kryddvörur og handklæði.
Enda þótt fast verð sæki á er enn þjóðarsiður að prútta.
Hefð er fyrir þjórfé á
veitingastöðum (5-10%) en á ódýrari veitingastöðum er ekki nauðsynlegt að gefa
þjórfé. Á einstaka veitingahúsum er þjórfé, 10 - 15% innheimt á reikningi. Það
er vinsælt en ekki nauðsynlegt að bæta 5-10% við uppgefið verð. Mælt er með að
bæta dálitlu við uppgefið verð í leigubílum.
LAND OG ÁFANGASTAÐUR
Tyrkland er 780.000 km2 með um 73 milljónir íbúa. Langstærstur hluti landsins
tilheyrir Asíu en 3% þess eru Evrópumegin við Bosporussund. Við vogskorna
strandlengjuna eru sumrin heit og afar sólrík en vetur mildir með talsverðri
úrkomu. Á hálendinu eru vetur harðir en sumur heit og þurr. Í austurhluta
landsins er hið sögufræga fjall Ararat (5.137m).
Frá Milas flugvelli
til Bodrum eru 50 km.
LÆKNISÞJÓNUSTA OG AÐSTOÐ Í NEYÐARTILFELLUM
Neyðarlínan í
Tyrklandi er 112. Fararstjórar útvega læknisaðstoð og veita nánari upplýsingar.
MATUR OG DRYKKUR
Tyrknesk matarhefð er
ótvírætt meðal hinna merkustu í heimi en ólík mörgum frægari hefðum að því
leyti að erfitt er að benda á eitthvað eitt sem einkennir hana. Fjölbreytni og
ferskleiki eru allsráðandi og áhrif sótt í austur jafnt sem vestur.
Veitingastaðir
heimamanna heita "lotankas" og eru skemmtilegir heim að sækja. Nærri
ströndinni er mikið úrval skyndibitastaða, sjávarréttastaða og prýðilegra
alþjóðlegra veitingastaða. Í hádeginu er vinsælt að fá sér kjúkklingakebab í
pitabrauði eða ljúffenga tyrkneska pizzu. Internetkaffihús eru víða í Bodrum og
Turkireis
SAMGÖNGUR
Smávagnar þeysa um
götur Bodrum og nágrannabæjanna og heita
Dolmus. Þeir stoppa þegar þú veifar og eru ódýr og skemmtilegur ferðamáti.
Leigubílar eru ódýrir og nóg af þeim.
Bílaleigur biðja um
íslenskt ökuskírteini og lágmarksaldur leigutaka er 18 ár. Bifhjólaleigur eru
margar og hafa létt bifhjól (“Vespur”) til leigu fyrir þá sem hafa
ökuskírteini. Einnig má leigja reiðhjól.
SÍMI OG RAFMAGN
Auðvelt er að hringja
úr símaklefum og nota símkort sem hægt er að kaupa á pósthúsum og hjá
blaðasölum. GSM þjónusta er góð en mjög dýr.
Rafmagnið er 220-240
volt og tenglar flestir eins og á Íslandi.
SKEMMTUN OG ÍÞRÓTTIR
Í Bodrum er hverskyns
vatnasport fyrir alla aldurshópa. Bátar af öllum stærðum og gerðum sem leigðir
eru út til lengri eða skemmri tíma. Tennisvellir eru víða og
miðnæturknattspyrna er í miklu uppáhaldi. Þeir sem eiga í sæmilegt lið ættu að
biðja fararstjóra að útvega verðuga mótherja í landsleik.
Næturlíf er fjölbreytt
með úrval af börum og veitingastöðum aðallega
í Gumbet.. Reykingar eru víðast leyfðar og oft boðið upp á vatnspípur á
kaffihúsum.
VEÐRIÐ
Meðfylgjandi tafla
sýnit meðalhita en hiti getur verið breytilegur frá ári til árs.
|
Hitastig
|
maí
|
júní
|
júlí
|
Ágúst
|
sept.
|
okt.
|
|
Á daginn
|
24°C
|
28°C
|
31°C
|
31°C
|
28°C
|
24°C
|
|
Á nóttunni
|
16°C
|
20°C
|
22°C
|
23°C
|
21°C
|
17°C
|
|
Í sjónum
|
19°C
|
22°C
|
24°C
|
25°C
|
24°C
|
22°C
|
|
ÓMISSANDI Í FARANGURINN
Sundföt, sólarárburður
og góða skapið.
TÍMAMISMUNUR
Bætið 3 klst. við íslenskan tíma. Upplýsingar um tímamismun í heiminum.