Kanarí

Gran Canaria - sælustaður í vetur

Íslendingar sækja til Kanarí allan veturinn. Eyjan hefur verið vinsælasti vetraráfangastaður íslendinga undanfarna áratugi. Flestir fara aftur og aftur enda erfitt að finna betri stað fyrir vetrarfríið.

Sem fyrr býður Úrval Útsýn fjölbreytt úrval góðra gististaða. Valið stendur um allt frá einföldum íbúðum og smáhýsum upp í glæsileg hótel. Við bendum á að ýms hótel bjóða uppá fæði. Morgunverð, hálft fæði eða þann kost að “allt” sé innifalið. Við leggjum ríka áherslu á að veita farþegum okkar góða þjónustu og áratuga reynsla Úrvals Útsýnar á Gran Canaria er ávísun á ánægjulegt sólarfrí.

Á Kanaríeyjum er líflegt að vera. Á daginn má rölta niður á strönd eða kíkja í einhverja af þeim fjölmörgu verslunarmiðstöðum, börum og kaffihúsum sem eru á eyjunni. Einnig má spila golf á afbragðs golfvöllum.

Á kvöldin kviknar næturlíf þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, allt frá diskótekum til rólegra og huggulegra kráa. Algengt er að ómur frá lifandi tónlist berist frá krám og veitingastöðum.

Kanaríeyjar eru fríhöfn og því er verðlag hagstætt, sérstaklega á dýrari varningi, t.d. úrum, skartgripum, myndavélum, hljómtækjum og hvers kyns rafmagnsvörum. Ágætt er að kanna vöruverð á mörkuðum og hjá götusölum, enda prútt algengt hjá slíkum aðilum.

Enska ströndin

Enska ströndin, eða Playa del Ingles, er staðurinn sem Íslendingar hafa valið í gegnum árin. Nafnið á bæði við ströndina og bæinn, sem Íslendingarnir elska.

meira

Maspalomas

Maspalomas svæðið er orðið sambyggt Ensku ströndinni að vestan. Mikil áhersla hefur verið lögð á tengingu við náttúruna með lágreistum húsaþyrpingum, fallegum sundlaugagörðum og áherslu á sameiginlega aðstöðu á gististöðunum.

meira

Puerto de Mogán

litlu Feneyjar á Kanarí

Bærinn, sem þekktur er fyrir besta veðrið á Kanaríeyjum, byggist upp frá höfninni með litríkum lágreistum húsum en ekkert þeirra er hærra en þriggja hæða.

meira

Puerto Rico

friðsæll bær á Kanarí

Puerto Rico er í lítilli fallegri vík, á suðvesturhluta Gran Canaria. Af mörgum talinn veðursælasti staður eyjunnar.

meira