Hotel IFA Dunamar

UPPLIFUN

Hotel IFA Dunamar er gott 4 stjörnu hótel á besta stað á Ensku ströndinni, neðst í gilinu og alveg við ströndina. Stutt í alla þjónustu. Fjöldi veitingahúsa og verslana í næsta nágrenni. Stutt er síðan hótel var endurnýjað. Hægt er að velja um dvöl í herbergjum án fæðis, með morgunverði eða hálfu fæði (morgun- og kvöldverður). Á IFA Dunamar eru 4 barir þar af tveir við sundlaugina, einn píanóbar á 7. hæð hótelsins með stórkostlegu útsýni og á 6. hæð er Atlantico barinn þar sem skemmtidagskrá hótelsins fer fram. Á hótelinu er hárgreiðslustofa, snyrt- og nuddstofa. Alls eru 3 sundlaugar í garðinum ásamt nuddpotti. Hægt er að fá handklæði við sundlaug, gegn gjaldi.  Allir gestir eiga sérmerkta bekki í garðinum.

Þráðlaust frítt internet er í gestamóttöku.
VISTAVERUR

Alls eru 257 herbergi á hótelinu í tveimur byggingum. Öll eru þau með baðkari með sturtu, loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi og svölum or/eða verönd. Athugið að einsmannsherbergi eru ekki með svölum eða verönd. Hægt er að fá herbergi sem eru sérbúin fyrir fatlaða.

KORT