Hotel Gran Villa del Conde


UPPLIFUN

Glænýtt 5 stjörnu hótel með vel útbúnum herbergjum og svítum á góðum stað rétt við ströndina í Maspalomas. Glæsileg gestamóttaka hótelsins líkist helst kirkju með tveimur turnum, klukkuturni og hvelfingu en hótelið sjálft líkist einna helst litlu þorpi, með torgi, veitingastöðum, kaffihúsi og verslunum.


VISTARVERUR

Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð. Í þeim eru öll helstu þægindi, s.s. loftkæling, gervihnattasjónvarp, internetaðgangur (gegn gjaldi), smábar, straujárn, öryggishólf og fataherbergi. Á svölum eru garðhúsgögn.

Glæsilegt baðherbergi með öllum þægindum, bæði sturtu og baðkari, hárþurrku og baðslopp.


AÐSTAÐA

Við hótelið er glæsilegur og gróðursæll garður með bar og góðum sundlaugum. Sundlaugarnar eru fimm, þrjár upphitaðar, ein barnalaug og gerviströnd. Auk þess eru þrír nuddpottar í sundlaugargarðinum.

Í heilsulindinni Thalasso eru í boði (gegn gjaldi) fjölbreyttar vellíðunar- og snyrtimeðferðir fyrir þá sem hægt að láta dekra við sig. Meðal þess sem er í boði er nudd, fjölbreyttar vatnsmeðferðir, gufuböð og andlitsböð.


AFÞREYING

Dagleg skemmtidagskrá, líkamsrækt, tölvuver (gegn gjaldi) keilusalur, tennisvöllur (gegn gjaldi), borðtennis og leiktækjasalur.

Á hótelinu eru auk þess snyrtistofa og hárgreiðslustofa.

Í næsta nágrenni eru golfvellirnir Meloneras Golf (500 m) og Maspalomas Golf (3 km).


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir með hlaðborð og þrír á la carte staðir; Ovo Restaurant Club sérhæfir sig í réttum Miðjarðarhafsins, Alpendre er með grillrétti og salat-hlaðborð og á Italiano El Patio er mikið lagt upp úr fersku pasta.

Víðs vegar um hótelið eru fjórir barir, m.a. einn með litlu diskóteki og bjórbar. Við sundlaugina eru tveir barir þar sem hægt er að fá snarl og létta rétti.


FYRIR BÖRNIN

Barnaklúbbur með dagskrá fyrir 4-12 ára börn og sérstök barnalaug.


STAÐSETNING

Á skemmtilegum stað á Meloneras, um 300 m frá ströndinni. Um 1,5 km eru í vatnagarð, 500 m í sandöldurnar í Maspalomas og 800 m í vitann í Maspalomas.

Meloneras er um 6 km frá Ensku ströndinni, um hálftíma akstur eða 35 km, frá flugvellinum í Las Palmas.


ANNAÐ

Hér má sjá myndir úr vefmyndavél hótelsins.


SJ 07.08

KORT